Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Samband foreldra og unglinga

$
0
0

Ástbjört Viðja nemi í 9. bekk Stóru-Vogaskóla skrifar.

Oft eru miklir erfiðleikar á milli foreldra og unglinga eins og þið hafið kannski kynnst sjálf.
Unglingar eru á mörkum þess að vera fullorðnir einstaklingar og börn sem þurfa gjarnan ráðleggingar og leiðsögn. Hlutverk foreldra er að ala börn sín upp sem sjálfstæða einstaklinga, undirbúa þau fyrir lífið en það virðist svo oft gleymast því foreldrar eiga oft erfitt með að sleppa takinu.
Þetta getur valdið miklum misskilningi fyrir bæði foreldrið og unglinginn sjálfan því misjafnt er gildismatið og hugmyndirnar varðandi ábyrgð, þroska og fleira.

En hvar liggja mörkin?

Krakkar/unglingar geta verið á ýmsum þroskastigum svo það er erfitt að segja hvar mörkin liggja.
Þetta er nefnilega mjög persónubundið og þess vegna er þetta alls ekki einfalt.
Best er auðvitað að samband milli foreldra og unglinga sé sem best þar sem foreldrar eru leiðbeinendur og stór hluti af lífi barnsins. Ef að samband á milli foreldra og unglinga er slæmt er líklegt að unglingurinn fari í mótþróa og þá er erfitt fyrir foreldra að leiðbeina og ala upp, því þá mun unglingurinn ekki taka eins mikið mark á foreldrunum.

10149865_602963203124245_1354689486_n

Til þess að laga samband á milli foreldra og unglinga er mjög gott að gera eitthvað saman sem höfðar til þroska beggja aðila og er áhugatengt. Muna hvað fólk er mismunandi, það sem gæti hentað einum hentar kannski ekki öðrum og mikilvægt er að taka tillit til allra og finna þá eitthvað annað sniðugt eða gera málamiðlanir.

Oft getur samvera foreldra og unglinga farið út í rifrildi eða þras og best er að reyna að laga það sem fyrst.

Unglingar eiga að geta leitað til foreldra ef eitthvað bjátar á.

Foreldrar eiga að leiðbeina unglingnum og hjálpa honum en stundum þurfa unglingar að brenna sig á eldinum til þess að skilja ástæðuna fyrir því hvers vegna eitthvað er bannað. Þegar foreldrar ætlast til þess að unglingurinn hlýði því sem þeir segja þurfa þeir líka að reyna að skilja hugsunarhátt unglingsins. Foreldrar voru eitt sinn unglingar sjálfir. Báðir aðilar þurfa að átta sig á því að þörf og löngun er ekki það sama og nauðsynlegt er að það sé skilningur á báðum atriðum.

Eins og til dæmis það, að mæta í skóla, það er kannski ekki það skemmtilegasta að mati unglingsins en það er mjög mikilvægt að hann geri það. Að sinna skyldum sínum.

Foreldrar þurfa að snúast mikið í kringum unglinginn sinn og það er stundum ekki það skemmtilegasta í heimi heldur en samt er það mikilvægt.

Mikilvægt er að fylgja eftir löngunum sínum, hafa smá frelsi og læra að njóta lífsins.
Foreldra langar stundum til þess að fá frí og þá þarf unglingurinn að skilja það og svo öfugt.

10151704_602963199790912_1038683000_n

Til þess að laga samband foreldra og unglinga er mikilvægt að báðir aðilar beri virðingu fyrir hvor öðrum, líti í eigin barm og skoði hvað hver þarf að laga hjá sjálfum sér. Benda á og útskýra tilfinningar sýnar.

Til dæmis ef að unglingur kvartar yfir eitthverju, svo sem því að vera ekki nógu góður að teikna, þá er betra í stað þess að foreldri segi að svo sé ekki, að reyna að skilja afhverju unglingurinn segir þetta.
Taka mark á tilfinningu unglingsins en segja samt að maður sé ósammála.
Það að finna fyrir samþykki eða skilningi getur skipt sköpum þó svo að hinn aðilinn sé ósammála.
Maður getur ekki breytt heiminum en maður getur breytt sjálfum sér.

Mikilvægt er að reyna að koma til móts við alla án þess að reyna að þóknast öllum, því það er ekki hægt og á endanum mun það brjóta manneskjuna sem alltaf beygir sig algjörlega niður.

Í sumum tilfellum getur það verið skaðlegt fyrir unglinga og foreldra að búa saman eða umgangast of mikið og þá eru krakkar gjarnan settir í fóstur eða að önnur úrræði eru fundin.
Það er samt þannig með öll sambönd að skaðlegt samband er skaðlegt samband hvort sem það sé á milli foreldra og barns, ömmu/afa og barnabarns eða fólks sem er í ástarsamböndum.

Munum bara að reyna að koma sem best fram við alla, og reynum að vera betri í dag en í gær.

Ástbjört Viðja skrifaði fyrr í vetur pistil sem vakti mikla athygli, Ég vil ekkert kvenréttindi ég vil jafnrétti.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283