Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Fæðingarorlof verði lengt í tólf mánuði

$
0
0

Svandís Svavarsdóttir, þingkona VG, segir samfélagið þurfa að horfast í augu við að það taki ekki þátt í líf barnafjölskyldna frá því að fæðingarorlofi lýkur og þar til leikskólarnir taki við.  Jafnframt minnti hún á ábyrgð kjörinna fulltrúa, hvort heldur á sveitastjórnarstigi eða á Alþingi, til að brúa bilið á milli orlofs og leikskólastigsins. Þetta sagði hún í flutningsræðu sinni á Alþingi í gær þegar hún mælti fyrir einu þriggja forgangsmála þingflokks Vinstri grænna á þessu þingi, um lengingu fæðingarorlofs.

Auglýsing

VGrvks_SvandisSvavars-171-495x373Svandís sagði mikilvægt væri að líta á mál af þessu tagi sem kjaramál barna, en ekki bara foreldra. Hún sagði það sérstakt og afmarkað áhyggjuefni hversu miklar líkur væru á fátækt barna hér á landi, hlutfallslega meira en í nágrannaríkjunum, og að huga þyrfti sérstaklega að kjörum barnanna sjálfra.

Verði frumvarpið að lög mun fæðingarorlofið lengjast úr 9 í 12 mánuði í tveimur þrepum. Þannig yrði það 11 mánuðir árið 2018 og 12 mánuðir 2019. Svandís sagðist vona að rými væri til þess á þessu þingi að áherslur yrðu skoðaðar sem nytu stuðnings þvert á flokka og yfir línur stjórnar og stjórnarandstöðu. Hún sagði stöðu og kjör ungs fólks á Íslandi verulegt áhyggjuefni og benti á að ung fólk kysi sér búsetu út frá margskonar þáttum; stöðu á húsnæðismarkaði, aðgangi að menntun óháð efnahagsstöðu, og að hluti af afstöðu hópsins til búsetu væri staða ungbarnaforeldra og kjörin sem við byggðum þessum yngstu fjölskyldum.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images