Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Landspítali – drekkhlaðin lest sem skröltir áfram í boði yfirvalda

$
0
0

Tómas Guðbjartsson læknir skrifar:

Tómas Guðbjartsson

Tómas Guðbjartsson

Sprunginn spítali á rauðu

Í gær var lýst yfir hæsta viðbúnaðarstigi á Landspítala en þegar ég mætti á stofugang vantaði 25 sjúklinga á spítalanum sjúkrarúm og rúmanýting mældist 116% (í stað æskilegs 85% hámarks). Eins og oft áður var lausnin að koma sjúklingum fyrir inn á kaffi- og biðstofum, göngum og geymslum, og sumir voru jafnvel sendir á önnur sjúkrahús. Flestir urðu þó að dúsa á bráðamóttökunni þar sem ástandið var skelfilegt, bæði fyrir sjúklinga og starfsfólk. Ástæðan? Jú, flensufaraldur og veirusýkingar. Óvænt uppákoma? Nei, algjörlega viðbúið; “eins og bréf sem skilar sér í pósti”. Þessir “faraldrar” skjóta jú alltaf upp kollinum á þessum tíma árs – og ekkert sem bendir til þess að þeir séu sérlega skæðir nú. Því miður á ástandið líklega eftir að versna því inflúensan hefur ekki enn náð hámarki. Sem er grafalvarlegt þar sem spítalinn og starfsfólk hans eru að þrotum komin og erfitt að tryggja öryggi sjúklinga við þessar aðstæður.

Þessa mynd tók ég í byrjun vikunnar. Sjúklingurinn bíður á gangi eftir hjartaþræðingu - sem er frekar sérhæfð meðferð. Kúabjallan er á sínum stað.

Þessa mynd tók ég í byrjun vikunnar. Sjúklingurinn bíður á gangi eftir hjartaþræðingu – sem er frekar sérhæfð meðferð. Kúabjallan er á sínum stað.

Drekkhlaðinn lest og aukin aðsókn

Landspítalinn er eins og lestin á myndinni hér að ofan – drekkhlaðinn fólki. Um borð er ákveðinn fjöldi sæta sem eiga að tryggja þægindi og öryggi þeirra sem ætla sér að ferðast með henni. Ekki er gert ráð fyrir standandi farþegum, hvað þá hangandi utan á lestinni. Um borð er eldra fólk sem keypti sér miða fyrir löngu síðan, og gerði ráð fyrir að eiga víst sæti á löngu ferðalagi. Það verður því hissa þegar öll sæti eru upptekin og þeim skipað að standa. Merkilegt nokk þá skröltir lestin áfram og farþegarnir furðu sáttir þrátt fyrir þrengslin og aðstöðuleysið. Öllum er ljóst að lestin er lúin og síbilandi, en á sama tíma skipar eigandinn, Ríkið, svo fyrir að taka verði við öllum sem vilja um borð. Sem er snúið því aðsóknin vex og sífellt fleiri eldri borgarar hafa keypt sér miða. Farþegum er tjáð að til standi að panta nýja og rýmri lest, en óvíst er hvenær hún verður tekin í notkun. Þangað til verða farþegar að sætta sig við farrými sem ekki þekkjast nágrannalöndum okkar. Og starfsfólkið er vinsamlega beðið um að brosa breitt.

Sofandi eftirlitsstofnanir

Það er löngu orðið ljóst að Landspítalinn er nokkrum númerum of lítill fyrir þau verkefni sem honum er ætlað að sinna. Ekkert svigrúm er lengur í starfseminni til að takast á við viðbúna árstíðabundna kúfa. Þetta bitnar á öryggi sjúklinga og er algjörlega óásættanlegt fyrir starfsfólk. Sem betur fer hafa stjórnendur spítalans viðurkennt vandann í fjölmiðlum. En hvar eru eftirlitsstofnanir eins og Brunaeftirlitið, Vinnueftirlitið og sérstaklega landlæknir sem á að tryggja gæði heilbrigðisþjónustu á Íslandi? Ljóst er að brýnt er að flýta byggingu nýs spítala við Hringbraut en þangað til hann rís úr jörðu (við höfum jú beðið í 17 ár!) verður að leysa bráðavanda spítalans með öðrum hætti. Og það strax.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images