Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Villa við útreikning húsnæðisbóta hjá Reykjavíkurborg

$
0
0

Villa varð við útreikning á greiðslum húsnæðisbóta og sérstaks húsnæðisstuðnings til leigjenda Félagsbústaða Reykjavíkur. Mælt er með því að þeir sem ekki hafa greitt greiðsluseðla frá Félagsbústöðum bíði með greiðslu til 8. febrúar næstkomandi. Eindagi leigu er 11. febrúar.

Auglýsing

„Unnið er að leiðréttingu bótaútreikninga og í framhaldinu að leiðréttingu á bankakröfum vegna leigugreiðslna til Félagsbústaða. Þetta leiðir í einhverjum tilfellum af sér ósamræmi milli útsendra greiðsluseðla frá Félagsbústöðum og kröfu í banka. Stefnt er að því að öllum leiðréttingum verði lokið þann 8. febrúar og þeim tilmælum því beint til leigutaka Félagsbústaða að greiða ekki leigu fyrr en þá. Eindagi leigu er sem fyrr 11. dagur mánaðar,“ segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Þá segir að hafi leigutakar ofgreitt til Félagsbústaða mun ofgreiðsla sjálfkrafa vera dregin frá leigugreiðslu Félagsbústaða þann 1. mars næstkomandi. „Sjái leigutaki sér ekki fært að bíða til 1. mars er hægt að óska eftir flýtimeðferð og fá endurgreitt fljótlega eftir 8. febrúar með því að hafa samband við næstu þjónustumiðstöð.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images