Karl Wernersson, fyrrverandi eigandi Milestone, hefur lokið afplánun á Kvíabryggju og er nú á áfangaheimilinu Vernd. Þetta kemur fram í DV í dag. Í apríl var Karl dæmdur til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar fyrir umboðssvik vegna 4,8 milljarða greiðslu Milestone til systur hans. Steingrímur Wernerson, bróðir Karls, er einnig á Vernd en hann var dæmdur í sama máli til tveggja ára fangelsisvistar.
Á árunum 2006 og 2007 runnu greiðslur upp á 4.8 milljarða út úr félaginu Milestón til Ingunnar Wernersdóttur, systur þeirra. Hæstiréttur dæmdi Guðmund Ólason, fyrrum forstjóra Milestone, í þriggja ára fangelsisdóm. Þá hlutu Margrét Guðjónsdóttir og Sigurþór C. Guðmundsson, endurskoðendur hjá KPMG, bæði 9 mánaða skilorðsbundinn dóm. Hrafnhildur Fanngeirsdóttir endurskoðandi var sýknuð.





