Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Amnesty gagnrýnir Microsoft vegna Skype

$
0
0

Amnesty International beinir nú spjótum sínum að fyrirtækinu Microsoft vegna Skype samskiptaforritsins. Amnesty gagnrýnir hversu stutt er gengið þegar kemur að persónuvernd og því að tryggja að samskipti í gegnum forritið séu dulkóðuð. „Þótt Microsoft, stærsta tæknifyrirtæki heims, hafi hannað og þróað Skype, býr samskiptaforritið ekki enn yfir öruggu, tvíhliða dulkóðunarkerfi (end-to-end encryption), sem er besta leiðin til að vernda skilaboð okkar og símtöl gegn forvitnum augum og eyrum.“

Auglýsing

Margir reiða sig á Skype til að eiga dýrmætar stundir með fjölskyldu og vinum eða gera vinnuáætlanir með samstarfsfólki í öðru landi. „Persónuleg samskipti okkar á Skype eru hins vegar ekki eins mikið einkamál og við teljum,“ segir í tilkynningu um netákall Amnesty. Hægt er að styðja aðgerðina með því að smella hér.

  • Microsoft verður að tryggja tvíhliða dulkóðun á öllum samskiptum okkar á Skype
  • Microsoft verður að upplýsa notendur sína með hvaða hætti Skype er dulkóðað og hvernig slík dulkóðun getur tryggt persónuvernd og tjáningarfrelsi. 

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Amnesty gagnrýnir Microsoft vegna Skype en fyrirtækið hefur verið afar tregt til að grípa til aðgerða svo tryggja megi betur öryggi samskipta í gegnum það. Þannig gagnrýni Amnesty bæði Skype og Snapchat í fyrra fyrir sömu vinnubrögð. Þá sagði Amnesty að notendur hugbúnaðarins ættu einfaldlega rétt á dulkóðuðum samskiptum. Um leið bentu Amnesty á að Skype er notað af bæði blaðamönnum og aðgerðarsinnum um allan heim. Fyrirtækið ætti því að finna til eigin ábyrgðar.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images