Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Guðni Th. aðstoðar Ævar vísindamann við að ljúka lestrarátaki

$
0
0

Í dag, 1. mars, lýkur þriðja lestrarátaki Ævars vísindamanns. Grunnskólar landsins hafa nú tæpa viku til að koma lestrarmiðum til skila, en dregið verður í átakinu þann 8. mars næstkomandi. Fimm börn sem dregin verða úr lestrarátakspottinum verða svo gerð að persónum í nýrri bók eftir Ævar Þór Benediktsson, Gestir utan úr geimnum, sem kemur út í maí.

Auglýsing

Sú nýlunda verður höfð á þetta árið að Ævar mun ekki sjálfur draga nöfnin fimm úr pottinum, heldur mun forseti Íslands, herra Guðni Th. Jóhannesson, sjá um það. Þetta er í þriðja skiptið sem átakið er haldið, en fyrri tvö átökin gengu einstaklega vel og voru yfir 114 þúsund bækur samtals lesnar í þeim. Í fyrra bárust 54 þúsund miðar frá börnum sem tekið höfðu þátt í átakinu.

Auglýsing

Ævar vísindamaður, heldur úti Facebook-síðu þar sem fylgjast má með framvindu verkefnisins. Þar hefur hann meðal annars póstað myndum af íslenskum börnum í Svíþjóð sem taka þátt í lestrarátakinu. Átakið virkar þannig að fyrir hverjar þrjár bækur sem börnin lesa eru prentaðir út lestrarmiðar og þeir sendir til Ævars. Í ár mun svo eins og áður segir forseti Íslands draga nöfn fimm barna úr pottinum til að verða persónur í nýrri bók Ævars.

Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images