Viktor Orri Valgarðsson, sitjandi varaþingmaður Pírata, brást ókvæða við gagnrýni á stuðning sinn við frumvarp um heimild til sölu áfengis í matvöruverslunum. Pistlahöfundurinn Agnar Kristján Þorsteinsson gagnrýndi frumvarpið á Facebook í gær og benti á að viðeigandi væri að draga Bónusfánann aftur að húni þingsins eins og gert var í mótmælaskyni í hruninu vegna frumvarpsins. „Hugsaði svo með mér að það væri viðeigandi að draga hann að húni þegar fjallað er um búsfrumvarp frjálshyggjuliðsins til að minna almenning á það fyrir hvaða fyrirtæki þingmenn vinna,“ skrifaði Agnar.
Þessa gagnrýni líkaði Viktor Orra afar illa við kallaði Agnar ómálefnalegan fyrir að ýja að því að þingmenn sem honum væru ósammála væru á launum hjá stórfyrirtækjum. Tekið skal fram að gagnrýni Agnars gaf það ekki í skyn heldur að frumvarpið og þar af leiðandi þingmennirnir að baki ynnu að hagsmunum kaupmanna meðvitað eða ómeðvitað og án launa. Raunar má segja að pistlahöfundurinn hafi sakað þingmanninn um að starfa í þágu þessa hagsmuna án endurgreiðslu. „Djöfull ertu málefnalegur. Það er náttúrulega ekki hægt að vera ósammála þér án þess að vera á launum hjá stórfyrirtækjum. Meira svona í stjórnmálaumræðuna. Vei,“ skrifaði þingmaðurinn. „Þú um það. Ekki er það ég sem er að þjóna hagsmunum Haga af blindri dólgafrjálshyggjutrú,“ svaraði Agnar og bætti síðar við að hroki þingmannsins í samtalinu væri nokkur. „Slaka þú svo á í hrokanum og þingmannastærilætinu sjálfur. Maður er búinn að sjá þig vera að tala um það að almenningur eigi ekkert að hafa um þetta mál að segja því þingmenn eigi að hafa vit fyrir þeim og annað í þeim dúr. Ég held að ofurlaunin og upphefðin séu að fara með þig og vinahópinn úr háskólapólitíkinni þarna. Allavega ertu búinn ásamt fleirum Pírötum upp á síðkastið að vera að gera þitt ýtrasta til að sannfæra mig um að það hafi verið stórkostleg mistök að kjósa Pírata og sérstaklega þegar þið eruð greinilega búnir að gera þetta að því máli sem Píratar ætla að standa og falla með.“
Þingmaðurinn vildi þó ekki kannast við að hafa sagt að þingmenn ættu að taka þessa ákvörðun fyrir almenning. Þarna afneitar þingmaðurinn ummælum sínum í þættinum Harmageddon frá sjötta febrúar þar sem hann einmitt færir þau rök fyrir máli sínu að almenningur eigi ekki að fá að kjósa um einkalíf annarra og því eigi þingið að afgreiða þetta mál. „Það er verið að [spyrja mig hvort ég] vilji ekki setja þetta í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þið Píratar viljið alltaf beint lýðræði. Það má alveg ræða að setja þetta í þjóðaratkvæðagreiðslu en stefna okkar er ekki svo einfeldningsleg að við viljum setja bara öll mál í þjóðaratkvæðagreiðslu og sérstaklega ekki mál sem koma að einkalífi borgaranna. Það er að segja að það er óeðlilegt að beint lýðræði sé notað til að meirihluti fólks stýri einkalífi minnihlutans,“ sagði Viktor Orri í viðtalinu.
Sjá einnig: Jón Gunnarsson kallar mótmælanda aumingja: „Þarft þú að vera með grímu auminginn þinn?“
Umræðan endar í miklum hita þar sem Viktor Orri endar á svipuðum nótum og hann hóf umræðuna. „Ég hef hins vegar tekið eftir því að um leið og maður sest á þing þá er eins og fullt af fólki haldi að það fái sjálfkrafa leyfi til að tala við mann af dónaskap, hroka og með persónuárásum sem það mundi aldrei leyfa sér að gera gagnvart fólki með nákvæmlega sama málflutning sem ekki situr á þingi. En það er bara misskilningur hjá þér og öðrum. Ég fylgi sannfæringu minni á þingi eins og ég hef alltaf gert áður en ég sat á þingi, og þú mátt bara fokking fokka þér fyrir að fullyrða gegn betri vitund að ég sé að gera það vegna þess að ég sé á launum hjá hagsmunaaðilum, eða ofurseldur einhverri upphefð. Og já, ég má segja hrokafullum dónum að fokka sér þó ég sé á þingi. Deal with it.“
Sjá einnig: Þingkona Pírata ýjar að því að VG hafi stolið athygli frá sér vegna Trump
Þá kveður þingmaðurinn umræðuna á með því að ýja að því að aðrir séu ómálefnalegir og dónalegir. „Að því sögðu þá get ég amk. forgangsraðað mínum tíma þannig að eyða ekki fleiri orðum en þetta í fólk sem er ekki fært um að sýna lágmarksvirðingu í samskiptum.“




