Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Sjálfstæðismenn bjóða ólögráða unglingum áfengi fyrir atkvæði

$
0
0

Áfengi er haldið að börnum vegna formannskosningu Heimdallar sem fer fram í dag. Þetta kemur fram í umfjöllun DV. „Steinar formaður er í framboði og ég ætlaði að biðja þig um að gera mér þann greiða að mæta og kjósa. Eftir kosningarnar verður geggjað MS partý, í geggjuðum sal og frítt áfengi fyrir alla. Þú og allir vinir þínir eru velkomin í þetta „huge“ partý EF þið eruð til í að kjósa.“

Auglýsing

Þetta segir meðal annars í Facebook skilaboðum sem 17 ára stúlka, sem er nemandi Menntaskólans við Sund sendi öðrum 16 ára nemanda skólans í gærkvöldi. DV segir frá því að blaðið hafi undir höndum fleiri skilaboð til nemanda þar sem lagt er áherslu á að frítt áfengi sé í boði fyrir unglingana. DV fékk skilaboðin frá heimildarmönnum sem allir óska nafnleyndar.

Auglýsing

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem áfengi er borið að unglingum í tengslum við stjórnmálastarf Sjálfstæðisflokksins. Í kringum kosningar í Heimdall árið 2016 fór lögregla í Valhöll vegna unglingadrykkju.

Árið 2012 fjallaði DV ítarlega um drykkju ólögráða unglinga á samkomum ungliðahreyfinga stjórnmálaflokkanna. Þar kom fram að Stefnir félag ungra sjálfstæðismanna í Hafnarfirði seldi áfengi þvert á lög til unglinga.

Þá má nefna að árið 2010 var nafn Halldórs Halldórssonar, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, nefnt í sambandi við unglingadrykkju í stjórnsýsluhúsi Ísafjarðarbæjar. Hann var þá bæjarstjóri Ísafjarðar og drykkjan fór fram í húsnæði bæjarins daginn fyrir prófkjör Sjálfstæðisflokks.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283