Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Katrín Halldóra er Elly

$
0
0

Í kvöld laugardaginn 18. mars verður frumsýnt nýtt íslenskt verk um Elly Vilhjálms í Borgarleikhúsinu í samstarfi við Vesturport. Elly var óumdeilanlega ein dáðasta söngkona landsins á sínum ferli og má vel færa rök fyrir því að hún sé það enn í dag. Lög hennar njóta enn vinsælda á öldum ljósvakans og ævisögu hennar frá árinu 2012, skrifuð af Margréti Blöndal, var gríðarlega vel tekið.

Katrín Halldóra Sigurðardóttir fer með hlutverk Ellyjar í sýningunni. Björgvin Franz Gíslason snýr aftur á svið eftir nokkurra ára fjarveru frá leikhúsinu og fer með hlutverk Ragga Bjarna, Kristjáns Kristjánssonar (KK), Steins Steinarr, Vilhjálms Vilhjálmssonar og fleiri. Hjörtur Jóhann Jónsson fer með hlutverk Svavars Gestssonar, Eyþórs Þorlákssonar og fleiri. Katla Margrét Þorgeirsdóttir fer með hlutverk Frú Sigríðar Jacobsen, Móður Ellyjar, Maríu vinkonu hennar, Sigrúnar Jónsdóttur og fleiri. Þá fer Björn Stefánsson með hlutverk Ævars R. Kvaran, Jóns Páls Bjarnasonar og fleiri.

Hér má sjá tónlistarmyndband með hljómsveit sýningarinnar og Katrínu Halldóru sem leikur Elly. Hún syngur lagið, Allt mitt líf.

Nú hafa Ólafur Egill Egilsson og Gísli Örn Garðarsson útfært sögu Ellyjar fyrir leiksvið. Bók Margrétar Blöndal var notuð sem heimild fyrir verkið auk fjölmargra frásagna frá vinum og kunningjum Ellyjar. Í verkinu er farið yfir ævi og störf hennar, bæði sem opinber persóna og söngkonu og gleði og sorgir hennar í einkalífinu.

Elly hóf feril sinn sem söngkona á 6. áratug síðustu aldar með KK-sextettinum þegar hún var aðeins 17 ára gömul eftir að hafa séð auglýsingu í Morgunblaðinu. Eftir sjö ár í sviðljósinu söng hún inn á sína fyrstu plötu. Hún varð svo landsfræg söngstjarna á Íslandi tveimur árum síðar þegar hún söng kvikmyndalagið Vegir liggja til allra átta inn á plötu. Það var mikill kostur fyrir hana að geta sungið inn á hljómplötur og þurfa ekki að standa á sviði öll kvöld. Síðustu árin tók hún upp þráðinn og söng með danshljómsveitum þegar það hentaði henni.

Höfundar: Ólafur Egill Egilsson og Gísli Örn Garðarsson | Leikstjóri: Gísli Örn Garðarsson |
Búningar: Stefanía Adolfsdóttir | Leikmynd: Börkur Jónsson |
Lýsing: Þórður Orri Pétursson Tónlistarstjóri: Sigurður Guðmundsson |
Leikgervi: Árdís Bjarnþórsdóttir | Höfundur sviðshreyfinga: Selma Björnsdóttir |
Hljóð: Garðar Borgþórsson | Sýningarstjóri: Christopher Astridge

Leikarar: Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Björgvin Franz Gíslason, Hjörtur Jóhann Jónsson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir og Björn Stefánsson.

Hljómsveit: Aron Steinn Ásbjarnarson, Björn Stefánsson, Guðmundur Óskar Guðmundsson, Sigurður Guðmundsson og Örn Eldjárn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283