„Mér fannst þó Mikael eyða mestum tíma sínum í að lýsa megnri andúð sinni á þessari ríkisstjórn og þeim sem í henni sitja og minni í að benda á hvað mætti gera til að bæta úr,“ skrifar Þorsteinn Víglundsson, velferðar- og jafnréttisráðherra, á Facebook í gærkvöldi vegna ummæla Mikaels Torfasonar rithöfundar um fátækt á Íslandi og sinnuleysi samfélagsins gagnvart málinu í þættinum Silfur Egils. Þorsteinn leggur áherslu á sömu hlið málsins og stjórnarliðarnir Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, og Nichole Leigh Mosty, þingkona Bjartrar framtíðar, sem bæði virtust telja umræðuna heldur einhliða og neikvæða fyrir sína flokka.
Velferðarráðherra stekkur þeim til varnar og segir þau hafa verið „að benda á að umfjöllun Mikaels hefði ef til vill verið nokkuð einhliða“ og hlotið skammir fyrir. „Ég velti því stundum fyrir mér hvort ekki sé hægt að taka uppbyggilega umræðu um það sem betur má fara í samfélaginu án þess að þurfa að tala með niðrandi hætti um núverandi fyrirkomulag eða þá sem við það starfa. Sjálfur efast ég ekki um góðan ásetning Mikaels í garð þeirra sem glíma við fátækt. Að sama skapi efast ég ekki um minn eigin vilja í þeim efnum eða allra sem ég hef kynnst á stuttum starfstíma mínum í Velferðarráðuneytinu eða inni á Alþingi. Ég er sannfærður um að allir þeir sem á þingi eru í dag brenna fyrir hugsjónum sínum og vilja láta gott af sér leiða þó svo skoðanir geti verið misjafnar á því hvaða leiðir séu bestar,“ skrifar Þorsteinn.
„Við búum bara ekki í sanngjörnu samfélagi þegar 370 þúsund krónur eru byrjunarlaun hjúkrunarfræðings, þegar fólk á að lifa á örorku, sem er 129 og 180 þúsund á mánuð. Þegar við leggjumst á koddann í kvöld, þá eigum við að skammast okkar,“ sagði Mikael í þættinum. Pawel birtir skopstælingu á orðum Mikaels á Facebook og varar við því að „vel meinandi fólk“ grípi til harkalegra aðgerða til að vinna bug á vandamálum. „Þegar við leggjumst á koddann í kvöld þá skulum við muna það að munaðarleysingjahæli í Kína eru full af stúlkubörnum og dauðasveitir stjórnvalda drepa fíkla í Fillippseyjum vegna þess að vel meinandi fólki tókst að sannfæra heimsbyggðina að fólksfjölgun og dóp væru ógnir af þeirri stærðargráðu að engin vettlingartök myndu duga,“ skrifar Pawel.
Nichole, sem einnig er formaður velferðarnefndar, skrifaði Pawel: „Takk fyrir þetta Mikki gerði það frekar erfitt fyrir mig að liggja á koddann.“ Nichole gagnrýnir Mikael fyrir einhliða umræðu um fátækt. „Ég vann með fjölskyldu sem hann var að lýsa í Fellahverfi í 9 ár… og já ég held að hægt er að segja að minnst kosti í gær sáum við rithöfundur segja hluti einhliða,“ skrifar hún á Facebook.
Þótt velferðarráðherra nefni þau Nichole og Pawel ekki á nafn má vera nokkuð ljóst að þau tvö geta fallið undir ummæli ráðherra um „einhverja“ sem „voguðu sér.“ Ráðherra viðurkennir að vissulega sé eitthvað um fátækt á Íslandi. „Fátækt fyrirfinnst vissulega á Íslandi og það er sjálfsögð skylda okkar að liðsinna þeim sem þurfa á hjálp að halda með áframhaldandi uppbyggingu velferðarkerfisins.
Það má hins vegar líka benda á það sem hér hefur gengið vel án þess að það endurspegli lítinn metnað til þess að gera betur,“ skrifar ráðherra en vill um leið ræða allt það sem vel gengur. „Kaupmáttur hefur aukist mikið og hefur raunar aldrei verið meiri. Laun eru raunar orðin vel samanburðarhæf við nágrannalönd okkar að nýju. Kaupmáttur lægstu launa hefur hækkað enn meira vegna sérstakrar áherslu á hækkun lægstu launa og lágmarksbótafjárhæðir hafa hækkað í takt við lægstu laun. Launajöfnuður (Gini) er mikill hér á landi og raunar hvergi meira ef horft er til aðildarríkja OECD. Atvinnuleysi er lítið, kaupmáttur lífeyrisþega hefur aldrei verið hærri, skuldir heimilanna hafa lækkað verulega og fátækt hefur minnkað verulega á nýjan leik á undanförnum árum.“
Ráðherra telur það ekki til marks um metnaðarleysi að vilja ræða það jákvæða samhliða því neikvæða þegar kemur að fátækt. „Þó svo við stöldrum við og hrósum því sem vel hefur tekist til með (og fjölmargir eiga lof skilið fyrir) dregur það ekki á nokkurn hátt úr metnaði okkar til að gera betur. Það þýðir einungis að við höfum úr betri stöðu að spila en ella.
Þessi ríkisstjórn mun, líkt og fyrri ríkisstjórnir, verða dæmd af verkum sínum líkt og aðrar ríkisstjórnir. Áform hennar um forgangsröðun í þágu velferðar eru sett fram með skýrum hætti í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Þau áform munu endurspeglast í fyrstu fimm ára ríkisfjármálaáætlun stjórnarinnar, sem kynnt verður á næstu vikum, fjárlögum næsta árs og þeim frumvörpum sem lögð verða fram á næstu vikum og mánuðum. Ég reikna með að Mikael muni kynna sér þau áform vandlega og vonandi koma með uppbyggilega gagnrýni á. Sjálfur er ég ávallt reiðubúinn að hlusta á slík ráð og taka slíkt samtal.“