Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Aldís Mjöll nýr formaður Landssamtaka íslenskra stúdenta

$
0
0

Aldís Mjöll Geirsdóttir hlaut kjör sem formaður Landssamtaka íslenskra stúdenta á landsþingi samtakanna síðastliðna helgi. Aldís Mjöll er 22 ára laganemi á öðru ári við Háskóla Íslands. Aldís hefur setið í framkvæmdastjórn samtakanna síðastliðin tvö ár og þar af sinnt stöðu gjaldkera og varaformanns. Í ræðu sinni lagði hún áherslu á að stúdentar yrðu að standa saman í hagsmunabaráttunni en kominn væri tími á að styrkja rödd stúdenta í samfélaginu. Sameinuð rödd stúdenta væri sterkasta aflið. Yfirskrift þingsins var Hvers virði er mín menntun? – Efling stúdenta í gæðastarfi háskólanna.

Auglýsing

Þingið var því nýtt til að fá að borðinu sjónarmið allra íslenskra stúdenta þegar kemur að gæðamálum. Um helgina kom í ljós að háskólanemendur eru uggandi yfir undirfjármögnun háskólakerfisins og telja það vera mikla hindrun í eflingu gæða í háskólunum. Aðrar áskoranir sem þinggestir sammæltust um voru íhaldssemi í kerfinu og ör endurnýjun stúdentafulltrúa. Þinggestir voru á einu máli um mikilvægi þess að stúdentar taki þátt í gæðastarfi í háskólunum þar sem þátttaka stúdenta tryggir fjölbreyttara og jafnara háskólasamfélag. Þetta hefur þó oft verið erfitt að innleiða sökum framangreindra áskorana og rými er til úrbóta.

Í embætti gæðastjóra LÍS var David Erik Mollberg kosinn en hann var sitjandi formaður samtakanna og hefur komið mikið að gæðastarfinu innan samtakanna á líðandi starfsári. David er 22 ára rekstrarverkfræðinemi á þriðja ári í Háskólanum í Reykjavík. Nýkjörinn alþjóðaforseti LÍS er Elsa María Guðlaugs Drífudóttir en síðastliðið starfsár hefur hún sinnt stöðu jafnréttisfulltrúa. Elsa er nemi á þriðja ári í myndlist við Listaháskóla Íslands.

Auglýsing

Í yfirlýsingu frá samtökunum segir: „Þessi helgi sýndi það og sannaði hversu mikilvægur góður samráðs- og samskiptavettvangur er íslenskum stúdentum. Mörg krefjandi verkefni bíða komandi framkvæmdarstjórnar LÍS. Ásamt því að tryggja að íslenskir stúdentar séu sameinaðir í baráttu sinni um öll hagsmunamál og halda áfram að rækta sambönd sín við landssamtök stúdenta erlendis verður hafin mótun stefnu í gæðamálum sem byggir á framlagi þingfulltrúanna þessa helgi. Þó að verkefnin séu krefjandi má framkvæmdarstjórn vera bjartsýn því ef andinn á landsþinginu, sem einkenndist af vilja, virðingu og vináttu, er einhver fyrirboði þá er samstaða íslenskra stúdenta mikil. Rödd íslenskra stúdenta er sameinuð undir Landssamtökum íslenskra stúdenta!“

Aðalmynd: Elín Dóra Birgisdóttir

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283