Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Hauck & Aufhäuser rannsóknarskýrslan afhent í fyrramálið

$
0
0

Rannsóknarnefnd Alþingis um þátttöku þýska bankans Hauck & Aufhäuser Privatbankiers KGaA í kaupum á 45,8% eignarhlut ríkisins í Búnaðarbanka Íslands hf., sem skipuð var á grundvelli þingsályktunar frá 2. júní 2016, afhendir forseta Alþingis skýrslu sína miðvikudaginn 29. mars kl. 10.00 í efrideildarsalnum í Alþingishúsinu.

„Aðkoma þýska bankans Hauck & Auf­häuser að kaupum á 45,8 prósenta eignarhlut ríkisins í Búnaðarbanka Íslands í ársbyrjun 2003 var í „reynd aðeins að nafni til“ að mati sérstakrar rannsóknarnefndar Alþingis og voru kaupin fjármögnuð í gegnum aflandsfélag á vegum Kaupþings.“ Þetta er meðal þess sem kemur fram í umfjöllun Fréttablaðsins síðastliðinn mánudag. Blaðið hefur undir höndum gögn sem nefndin hefur aflað.

Auglýsing

Fjárfesting þýska bankans í gegnum Eglu hf. virðist samkvæmt umfjöllun blaðsins aðeins hafa verið tímabundin. Þá var bankanum tryggt „skaðleysi“ af þátttöku sinni í kaupunum. Þetta kemur fram í bréfi rannsóknarnefndarinnar frá 13. mars. Í svarbréfi Ólafs Ólafssonar til nefndarinnar, sem Fréttablaðið hefur einnig undir höndum, er fullyrt að „engum blekkingum [hafi] verið beitt gagnvart ríkinu“ þegar hluturinn í Búnaðarbanka var keyptur. S-hópurinn hafi boðið hæsta verð fyrir hlutinn og ríkið hafi fengið kaupverðið greitt að fullu.

Lesa má umfjöllun Fréttablaðsins í heild með því að smella hér.

Auglýsing

Kjartan Bjarni Björgvinsson héraðsdómari stýrir rannsókn á þátttöku þýska bankans Hauck & Aufhäuser Privatbankiers KGaA í kaupum á hlut ríkisins í Búnaðarbankanum.

Fyrrverandi þingforseti Alþingis, Einar K. Guðfinnsson, að höfðu samráði við forsætisnefnd og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins, skipaði Kjartan Bjarna Björgvinsson héraðsdómara til að stýra rannsókn á þátttöku þýska bankans Hauck & Aufhäuser Privatbankiers KGaA í kaupum á 45,8% eignarhlut ríkisins í Búnaðarbanka Íslands hf. o.fl. árið 2003, sbr. ályktun Alþingis frá 2. júní 2016. Rannsókninni er ætlað að ljúka eigi síðar en 31. des. 2016.

Samkvæmt ályktun Alþingis frá 2. júní 2016 mun stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd samhliða rannsókninni fara yfir fyrirliggjandi gögn og upplýsingar um umfjöllun og ályktanir eftirlitsaðila um söluna á Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf., Landsbanka Íslands hf. og Búnaðarbanka Íslands hf., sbr. ályktun Alþingis frá 7. nóvember 2012.

Á grundvelli niðurstöðu rannsóknarinnar og að lokinni yfirferð sinni mun stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd leggja mat á hvort hún geri tillögu um frekari rannsókn á einkavæðingu Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf., Landsbanka Íslands hf. og Búnaðarbanka Íslands hf., sbr. fyrrgreinda ályktun frá 7. nóvember 2012 þar um.

Kjartan Bjarni Björgvinsson héraðsdómari stýrði nefndinni. Fyrrverandi forseti Alþingis, Einar K. Guðfinnsson, skipaði Kjartan að höfðu samráði við forsætisnefnd og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins. Samkvæmt ályktun Alþingis frá 2. júní 2016 átti stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd samhliða rannsókninni fara yfir fyrirliggjandi gögn og upplýsingar um umfjöllun og ályktanir eftirlitsaðila um söluna á Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf., Landsbanka Íslands hf. og Búnaðarbanka Íslands hf., sbr. ályktun Alþingis frá 7. nóvember 2012.

Á grundvelli niðurstöðu rannsóknarinnar og að lokinni yfirferð sinni mun stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd leggja mat á hvort hún geri tillögu um frekari rannsókn á einkavæðingu Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf., Landsbanka Íslands hf. og Búnaðarbanka Íslands hf., sbr. fyrrgreinda ályktun frá 7. nóvember 2012 þar um.

 

Aðalmynd fengin á vef Hauck & Auf­häuser


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images