Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Gylfi með tæpa 1.5 milljón á mánuði

$
0
0

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, er með tæpa 1.5 milljón í laun á mánuði. Þetta kemur fram á vef ASÍ en sambandið hefur birt upplýsingarnar í kjölfar fyrirspurnar frá Stundinni. „Í svari Gylfa kemur fram að laun hans séu 1460 þúsund krónur á mánuði. Þó forseti fái ekki greitt sérstaklega fyrir yfirvinnu er vinnutíminn nokkuð langur, en nýleg tímaskráning á starfi forsetans sýnir að hann vinnur um 60 klukkustundir á viku,“ segir á vef ASÍ.

Auglýsing

Á vef ASÍ segir að meðaltal heildarlauna á almennum vinnumarkaði, samkvæmt könnun Hagstofu Íslands, voru 708 þúsund krónur árið 2016. Þetta kemur fram í launakönnun Hagstofunnar frá 2015 hækkuð m.v. launavísitölu milli 2015 og 2016.

Þá er forsendum samanburðarins útlistað. „Laun forseta ASÍ eru því ríflega tvöföld (2,4) þau meðallaun sem eru á almennum vinnumarkaði. Ef tekið er tillit til vinnutíma og vinnustundum deilt í heildarlaun þá er forseti ASÍ með 1,4 sinnum meðallaun á almennum vinnumarkaði.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images