Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Þorgerður Katrín segir ekki á dagskrá að lækka veiðigjöld né að fella gengið

$
0
0

„Gengið verður ekki fellt,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í samtali við Fréttablaðið í dag. Ráðherra biðlar um leið til fyrirtækja í sjávarútveg að sýna samfélagslega ábyrgð og segir mikilvægt að taka til í gjaldmiðlamálum Íslands. Við hljótum öll að sjá að það gengur ekki lengur að vera með íslenska krónu. Nú erum við búin að setja á laggirnar starfshóp sem á að skoða þessi mál gaumgæfilega og ég vona að sá hópur vinni hratt og örugglega að lausn á málinu,“ segir Þorgerður Katrín.

Auglýsing

Þorgerður er spurð út í ummæli Teits Björns Einarssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, sem telur stöðu HB Granda til þess fallna að minna á nauðsyn þess að lækka veiðigjöld. Sjávarútvegsráðherra segist „mjög treg til þess“ og það sé ekki á dagskrá. „Við skulum hafa það hugfast að útgerðin var ekki til í að greiða hærri veiðigjöld þegar gengið var veikt. Sanngirni verður að ganga í báðar áttir.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images