Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ingibjörg Ósk er nýr varaforseti ASÍ

$
0
0

Ingibjörg Ósk Birgisdóttir var í gær kjörin nýr varaforseti Alþýðusambands Íslands á fundi miðstjórnar sambandsins. Hún tekur sæti Ólafíu B. Rafnsdóttur fyrrverandi formanns VR sem sagði sig frá öllum trúnaðarstörfum fyrir verkalýðshreyfingarinnar fyrr í mánuðinum. Ingibjörg Ósk hefur setið í stjórn VR undanfarin 7 ár og í miðstjórn ASÍ frá árinu 2011.

Auglýsing

Ragnar Þór Ingólfsson, nýkjörinn formaður VR, sagði nýlega að hann hyggðist ekki taka sæti í stjórn ASÍ með Gylfa Arnbjörnssyni miðað við núverandi áherslur sambandsins. Ragnar tók formlega við stjórnartaumum VR síðastliðinn þriðjudag. Ragnar sagði í ávarpi á fundinum að nýafstaðnar kosningar til formanns hafi snúist um ytri áherslur félagsins og hugmyndafræði sem hann vildi hafa að leiðarljósi. Hann óskaði nýkjörinni stjórn og trúnaðarráði til hamingju með kjörið og sagði það áskorun fyrir stjórnina að fara yfir niðurstöður kosninganna og leggja línur að framhaldinu. Hann lagði áherslu á aukin skoðanaskipti innan félagsins og aukið samstarf og hvatti trúnaðarráð og félagsmenn til að leggja fram hugmyndir og tillögur sem styrkt geti starfsemi félagsins.

Auglýsing

Ingibjörg situr í stjórn VR og var meðal stuðningsmanna Ólafíu til formennsku VR árið 2013. Ingibjörg var í sjötta sæti framboðslista Samfylkingarinnar í kosningum til Alþingis árið 2016. Þar lagði hún áherslu á að standa vörð um velferðarkerfið, óspillta náttúru og jöfn menntunartækifæri allra. „Sem stjórnarmaður í stéttarfélagi hef ég kynnst því að svört atvinnustarfsemi og kennitöluflakk í fyrirtækjarekstri eru meinsemdir í íslensku atvinnulífi sem hafa viðgengist alltof lengi og verður að útrýma. Loks legg ég mikla áherslu á að Samfylkingin berjist af alefli gegn hvers konar einangrunarhyggju og þjóðrembu,“ segir í lýsingu frambjóðandans á henni sjálfri.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images