„Verði virðisaukaskattur á ferðaþjónustu tvöfaldaður eins og forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa boðað mun það hafa í för með sér grafalvarlegar afleiðingar fyrir fyrirtæki og starfsfólk í ferðaþjónustu um land allt,“ segir í ályktun Samtaka ferðaþjónustunnar vegna hugmynda um að ferðaþjónustan greiði hærri virðisaukaskatt en gert er í dag. „Afleiðingarnar verða alvarlegastar fyrir landsbyggðina sem á nú þegar undir högg að sækja þegar kemur að ferðaþjónustu. Mikil gengisstyrking og kostnaðarhækkanir stefna nú þegar afkomu fyrirtækja í greininni í mikla hættu. Með boðuðum skattahækkunum ríkisstjórnarinnar versnar samkeppnishæfni Íslands til mikilla muna.“
Samtök ferðaþjónustunnar stóðu í gær fyrir fjölmennum fundi meðal félagsmanna sinna þar sem rætt var um fyrirhugaða hækkun ríkisstjórnarinnar á virðisaukaskatti í ferðaþjónustu „Ferðaþjónustan er grunnstoð í íslensku atvinnulífi og með óyfirveguðum aðgerðum ríkisstjórnarinnar er vegið að framtíðarmöguleikum greinarinnar og íslensku efnahagslífi,“ segir í ályktun fundarins. „Ferðaþjónusta er í eðli sínu alþjóðleg atvinnugrein. Íslensk ferðaþjónustufyrirtæki starfa því á alþjóðlegum markaði og í samkeppni við erlenda áfangastaði þar sem ferðaþjónustan er almennt í lægri þrepum virðisaukaskattskerfisins. Það hefur sýnt sig að þau lönd sem eru t.a.m. með gististaði í efri skattþrepum hafa lotið í lægra haldi í samkeppni við aðra áfangastaði. Tillögur um hækkun á virðisaukaskatti vega þannig alvarlega að samkeppnishæfni Íslands.“






