Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Keypti sér villu í Portúgal fyrir bæturnar

$
0
0

Það hefur varla farið framhjá neinum að svört skýrsla um bótasvik kom út nýlega. Reyndist einn einstaklingur hafa svikið út bætur árið 2011. Kvennablaðið ákvað að leita uppi bótasvikarann sem fannst árið 2011 og fá hann í viðtal.

„Sigurður“ vildi ekki koma fram undir nafni. Sigurður er 36 ára, lögfræðingur frá Háskóla Reykjavíkur. Hann er með lögheimilið sitt skráð í Æsufellinu í Breiðholti – en býr í Portúgal.

Viðtalið fer fram í gegnum Skype. Við látum forritið hringja og eftir tvær hringingar birtist snyrtilegur maður á skjánum.

Sæll Sigurður. Takk fyrir að samþykkja að taka þátt í þessu viðtali. Kannski er best að byrja á því að spyrja hvernig þetta byrjaði hjá þér?

 Þegar þetta byrjaði var ég að vinna sjálfstætt sem lögmaður. Ég kynntist nokkrum öryrkjum gegnum vinnuna og sá að þeir voru bara lifandi lúxuslífi og þurftu ekkert að hafa fyrir hlutunum. Kerfið meira að segja reddaði sumum mat og einkastrætó eða rafmagnshjólastól. Heimilisþrifum og frítt í sund og allt. Ég var kominn með leið á harkinu og ákvað bara að skoða hvað þyrfti að gera.

Og hvernig fórstu svo að?

Ég hafði samband við lækni sem var þekktur fyrir að gera hvað sem var fyrir peninga, redda fólki lyfjum og örorkumati alveg hægri vinstri. Hann falsaði pappírana og reddaði mér geðveikum rauðum rafmagns stól sem ég rúllaði alltaf á í viðtöl og svoleiðis. Svo byrjaði ég bara að djamma og chilla yfir Netflix alla daga. Ég var með sérstakan viðtalsgalla líka. Svona sjúskaða úlpu, of stuttar buxur og Adidas galla. Alltaf með opinn harðfiskspakka í vasanum og svona. Skráði heimilisfangið mitt hjá einum skjólstæðinga minna í Æsufelli. Það er geðveikt sannfærandi heimilisfang.

Auglýsing

En nú eru bæturnar frekar lágar?

Jú, sjáðu til, þess vegna er ég í Portúgal. Það er allt svo ódýrt hérna. Þá þarf ég heldur ekki að vera alltaf að feika hlutina ef einhver myndi sjá mig. Ég keypti villu og bíl hérna og leigi hana út á AirBnB meðan ég bý í húsvarðaríbúðinni. Fékk mér sæta portúgalska kærustu og allt saman. Lífið er bara ljúft.

En það komst upp um þig ekki satt? Hvernig gerðist það og hver er þá framtíðin hjá þér?

Það var fyrir algjör mistök, sko. Fyrrverandi konan mín, beljan, sem ég skildi við til að vera með kærustunni minni tilkynnti mig til Tryggingastofnunar. Þeir boðuðu mig í viðtal og ég náði ekki að redda flugi heim. Þá komu þeir óvænt í íbúðina sem ég var skráður á og gaurinn sem átti heima þar brotnaði niður og játaði allt. Ég reyndi að þræta fyrir þetta. Ég meina afhverju má ég ekki lifa lífinu til fulls eins og aðrir. Það eina sem ég vill er að fá að fylgjast með ‘Orange is the new black’ og svona án þess að þurfa alltaf að vera að setja á pásu fyrir einhverja vinnu eða eitthvað.

En þarftu þá ekki að gera það núna?

Ég er að hugsa málið. Þeir heimtuðu endurgreiðslu en AirBnB tekjurnar redda því kannski. Ég er að pæla í að borga kannski einhverjum til að hryggbrjóta mig svo ég geti komist aftur á kerfið. Ég er eiginlega bara orðinn háður því. Svo eru allir vinir mínir líka öryrkjar og þeir myndu ekki leyfa mér að vera memm ef ég er ekki með skírteinið.

Nú komst upp um þig. Heldur þú að þú sért einn um að vera að svindla á þessu?

Nei við erum mörg. Ég fékk einmitt upplýsingarnar um lækninn í Facebook-hóp sem við höfum fyrir okkur. Og þar eru vinir mínir. Hópurinn er núna fimm þúsund meðlimir. Meirihlutinn eru þreyttir menn á miðjum aldri sem vilja bara fara í golf og svona. Samfélagið kúgar okkur geðveikt mikið.

En hvað með þá sem hafa raunverulegan rétt á bótum. Hefur þú ekkert samviskubit yfir að fólk haldi að það sé að svindla eins og þú?

Nei. Afhverju ætti ég að vera eitthvað að pæla í þeim. Það er allt öðruvísi fólk en ég. Ég meina bara eins og að Kínverjar t.d. eru allt öðruvísi fólk en ég. Ég tilheyri öðrum samfélagshóp. Öryrkjar eru bara eitthvað alltaf hjá læknum og svona. Mér finnst þau fáránlega léleg að vera föst hérna heima í staðinn fyrir að redda sér bara eins og ég. Ég meina það er ekkert mál.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images