Miðað við fyrstu fréttir af talningu atkvæða í forsetakosningum í Suður-Ameríkuríkinu Ekvador mun frambjóðandi vinstri aflanna, Lenin Moreno, vinna nauman sigur á andstæðingi sínum Guillermo Lasso. Samkvæmt fyrstu tölum fékk Lenín 51% atkvæða en Lasso 49%. Um leið og fyrstu tölur voru kynntar upphófust raddir í herbúðum Lasso um að kosningasvindl væri í tafli en fyrr um daginn hafði Lasso fagnað sigri þegar nokkrar útgönguspár sýndu hann með forystu, allt að sex prósentustiga. Kosningaeftirlitsmenn á vegum samtaka Suður-Ameríkuríkja hafa þó hrósað framkvæmd kosninganna og ekki fundið á þeim annmarka.
Lenin Moreno er jafnaðarmaður og var handgenginn Rafael Correa, sem hefur verið forseti síðustu þrjú kjörtímabil á einu lengsta stöðugleikaskeiði síðari ára í þessu ríki sem þekkt var fyrir pólitískan óróa.
Lenín er að líkindum fyrsti maðurinn í hjólastól sem kjörin er til forsetaembættis í heiminum en hann lamaðist eftir að hafa verið skotinn í bakið í vopnuðu ráni fyrir tæpum 20 árum.
Julian Assange, ritstjóri WikiLeaks, sem hefur dvalið í sendiráði Ekvadors í Lundúnum með diplómatískt hæli, veitt af Rafael Correa, andar að líkinum léttar yfir sigri Leníns. Andstæðingur hans, Guillermo Lasso, hafði lýst því yfir í kosningabaráttunni að hann myndi fyrirskipa Assange að yfirgefa sendiráðið innan mánaðar, næði hann kjöri.





