Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Sigmundur fær Pulitzer

$
0
0

Það voru Alþjóðasamtök rannsóknarblaðamanna ICIJ, sem þann 9. maí 2016 veittu öllum aðgengi að gagnagrunninum með Panamaskjölunum svokölluðu, en í dag tæpu ári síðar fengu fyrirtækið The McClatchy Company,  ICIJ, og dagblaðið Miami Herald Pulitzer-verðlaunin eftirsóttu fyrir umfjöllun sína um Panamaskjölin. Tíu greinar fengu verðlaun, þar af ein þar sem fjallað var um Wintris-aflandsfélag í eigu Önnu Sigurlaugar Pálsdóttur og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar þáverandi forsætisráðherra en hann varð að víkja úr þeim stóli vegna hneykslisns eftir að hafa fyrst tekið sér – „frí“.

Verðlaunin sem tilkynnt voru í dag eru ekki þau einu því Panamalekafréttir hafa hlotið viðurkenningar fyrir vandaða blaðamennsku víða og umfjöllun um Wintris sérstaklega, eins og Gullspaðann, æðstu verðlaun sænskra rannsóknarblaðamanna nú á dögunum. Ekkert virðist þó duga til að þagga niður firrtar samsærisraddir og það stefnir jafnvel í að heill stjórnmálaflokkur verði stofnaður utan um þetta fórnarlamb Pulitzerverðlaunanna.

Afhjúpun Panamaskjalanna átti eftir að hafa afdrifaríkar afleiðingar á Íslandi en í ljós kom að ráðherrar, borgarfulltrúar og stjórnmálamenn nýttu skattaskjól til að fela fyrirtækjaslóðir, eignir og fjármuni. Blásið var til kosninga og  nýrrar stjórnar vegna Panamahneykslisins en lítinn lærdóm drógu Íslendingar af þeirri lexíu því einn ráðherranna sem reyndist eiga félag í skattaskjóli er nú forsætisráðherra Íslands, Bjarni nokkur Benediktsson.

Auglýsing

Kastljós Ríkisútvarpsins hélt úti öflugri fréttamiðlun í kjölfar Panamaskjalanna og uppskar vandlætingu og ofsóknir frá þeim sem málið snerti. Panamaskjölin snertu viðkvæman streng í braskarahjörtum Íslendinga því eins og Guðmundur Jónsson prófessor í sagnfræði sagði í viðtali við Kastljós á RÚV þriðjudaginn 24. maí:

„Íslendingar hafa flutt út eða skapað sér tekjur erlendis og geymt í erlendum bönkum mjög lengi, jafnvel lengur en lýðveldið, þannig að þetta er svosem ekkert nýtt í okkar sögu.“

Talsverðrar afneitunar gætti í herbúðum Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins vegna Panamahneykslisins og taldi sjálfstæðismaðurinn Jón Gunnarsson, sem kallaði mótmælanda aumingja,  en gegnir nú embætti samgöngu-, fjarskipta- og byggðamálaráðherra,  í samtali við Kvennablaðið  að lekinn á gögnum lögfræðistofunnar Mossack Fonseca sýndi alls ekki að Sjálfstæðisflokkurinn væri á kafi í aflandseyjabraski heldur þvert á móti  – að flokkurinn væri það ekki. Þetta var tilfinning Jóns Gunnarssonar þrátt fyrir að í gögnunum mætti finna bæði þáverandi fjármálaráðherra og innanríkisráðherra, fjölskyldu Bjarna Benediktssonar, formanns flokksins og fjármálaráðherra, sem og tvo fyrrverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.

„Mér finnst Kastljósþátturinn marka ákveðinn lágpunkt í frétta­flutn­ingi,“ sagði Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, í samtali við Morgunblaðið. Júlíus brást þar við fréttaflutningi Kastljóssins en fjallað var um aflandseyjarfélag Júlíusar í samhengi við langvarandi deilur systkina hans um fé foreldra þeirra Ingvars Helgasonar heitins og Sigríðar Guðmundsdóttur eiginkonu hans. Júlíus Vífill neitaði ítrekað að verða við boðum Kastljóss um viðtal.

Teikning Lára Garðarsdóttir

Teikning Lára Garðarsdóttir

Afneitun Sigmundar Davíðs og eiginkonu hans var með slíkum ólíkindum  í kjölfar afhjúpunarinnar að erfitt er að hafa það eftir nema að það hljómi sem lygasaga. Um margra mánaða skeið þurfti þjóðin að engjast með Sigmundi og eftiráskýringum hans, miskunnarlausu ofsóknarbrjálæði hans á hendur Ríkisútvarpinu, að ógleymdum allavega fimm samsæriskenningum hans sem beindust meðal annars að flokksforustu Framsóknarflokksins en ekki síður að erlendum auðmönnum og meðreiðarsveinum þeirra.

Ringulreiðin sem Sigmundur skapaði með framferði sínu varð á endanum til þess að þjóðin – úttauguð og svefnvana af vitleysunni  – kaus sér fyrrverandi fjármálaráðherra og Panamaprins í forsætisráðherrastól og nú er komið að þeim lágpunkti í íslenskum stjórnmálum að Sigmundur treystir á varanlegar bogfrymilskemmdir á þjóðarsálinni og telur að sérframboð hans í stjórnmálum sé Siðblindralandi fyrir bestu.

 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images