Miðstöð til minningar um gyðingastúlkuna Önnu Frank krefst þess að Donald Trump, Bandaríkjaforseti reki Sean Spicer, blaðafulltrúa Hvíta hússins úr starfi. Krafan er gerð vegna ummæla Spicers á blaðamannafundi í gær þar sem hann sagði að Adolf Hitler hefði ekki notað efnavopn í Seinni Heimstyrjöldinni.
Steven Goldstein, forstöðumaður Miðstöðvar Önnu Franks sagði í yfirlýsingu að Spicer verði að víkja fyrir að hafna Helförinni; neita því að Hitler hefði myrt milljónir Gyðinga með eiturgasi í útrýmingarbúðum Nasista.
Ummæli sem valda þessum hörðu viðbrögðum féllu í gær þegar hinn lánlausi blaðafulltrúi reyndi að draga upp samlíkingu á milli Hitlers og Bashar al-Assads, Sýrlandsforseta, í samhengi við dauðsföll af völdum saríngass í liðinni viku. Hvíta húsið hefur slegið því föstu að þetta hafi verið efnavopnaárás herja Assads og brást við með hernaðaraðgerðum.
„Jafnvel einhver jafn auðvirðilegur og Adolf Hitler lagðist ekki svo lágt að nota eiturefnavopn“, sagði Spicer á blaðamannafundinum í gær. Í valdatíð Hitlers voru milljónir Gyðinga drepnir með blásýrugasi í útrýmingarbúðum.
Þegar Spicer var beðinn um að útskýra ummæli sín sagði blaðafulltrúinn að Hitler hefði ekki notað eiturgas á eigin þjóð á sama hátt og Assad.
Eftir blaðamannafundinn í gær þurfti Spicer að klóra áfram í bakkann og lýsa því yfir að hann hefði á engan hátt ætlað sér að gera lítið úr skelfingu Helfararinnar; hann hefði eingöngu reynt að draga fram eðlismuninn á útrýmingarbúðum og því að láta herflugvélar varpa eiturefnum á saklausa borgara.
Spicer baðst síðan enn frekar afsökunar á ummælum sínum í viðtölum við blaðamenn og sagði að þau hefðu verið óviðeigandi sérstaklega nú í aðdraganda páskanna. Blaðamaður spurði Spicer hvað hann hefði lært af þessu. „Að hugsa áður en maður talar“, sagði blaðafulltrúinn.
Umfjöllun CNN um málið má sjá hér.





