Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Klökkvatríóið leggst yfir málin

$
0
0

Jón Örn Marinósson skrifar:

15032821_10209255619360672_8222685689276326575_nFáir skemmtikraftar njóta jafnmikilla vinsælda í íslenskum fjölmiðlum þessa dagana og „Klökkvatríóið“, sem ég kalla svo með sjálfum mér, ráðherrarnir Þorsteinn Víglundsson, Kristján Þór og Óttarr Proppé. Þeir fara með ráðherravald í málaflokkum þar sem stendur ekki steinn yfir steini og má vart á milli sjá hver þeirra setur upp meiri og átakanlegri depurðarsvip í fréttaviðtölum.

Kristján Þór hefur sem fyrrverandi heilbrigðisráðherra meirapróf í því að útskýra hvers vegna hann sé þess ekki megnugur að gera nokkurn skapaðan hlut í málunum.

Þorsteinn á enn margt ólært; hann er stundum augljóslega að kikna undan þeirri byrði að geta ekkert aðhafst í húsnæðismálum fyrir bévítans lögmálinu um framboð og eftirspurn – en hann á eftir að sjóast eins og Kristján.

Auglýsing

Óttarr hefur náð tökum á að fela Gerðubergsbrosið og setja upp alvörusvip um leið og hann tönnlast á sömu aflituðu tuggunni dag eftir dag án þess að blikna: Engir peningar séu til í heilbrigðiskerfið en framtíðin sé björt eða a.m.k. sé hann bjartsýnn á það.

Er ekki orðið tímabært að gefa þessum mönnum frí frá fjölmiðlum svo að þeir geti „lagst yfir málin“ eins og Kristjáni Þór er tamt að kalla það verklag að gera sem minnst og helst ekki neitt.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images