Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

DAS segir öldruðum upp húsnæðinu – beitti fjárkúgunum, segir leigjandi

$
0
0

Naustavör ehf sem er dótturfélag Sjómannadagsráðs (sem rekur m.a. einnig Hrafnistu og happdrætti DAS) hefur sent uppsagnarbréf til íbúa í fjölbýlishúsi fyrir aldraða, sem félagið rekur við Boðaþing í Kópavogi. Uppsagnarbréfið var sent til þeirra sem féllust ekki á að breyta leigusamningi sínum. Félagið hafði í hótunum og heimtaði breytinguna eftir að dómur féll í febrúar, þar sem íbúar höfðu betur gegn félaginu og fengu samþykkt sitt sjónarmið um að ofgreitt hafði verið í hússjóð árum saman.

Fjallað var um þessar hótanir í Kvennablaðinu í mars. Í hótunarbréfinu var vikufrestur veittur til að bregðast við. Þeir sem ekki skrifuðu undir fengu uppsagnarbréf á dögunum.
Í fjölbýlinu Boðaþingi 22-24 eru 95 ibúðir. Meðalaldur íbúanna er 82 ár.

Auglýsing

„Þetta var ekkert annað en fjárkúgun“, segir Jón Guðlaugur Þórðarson, íbúi í húsinu en hann var upphafsmaður að því að leigjendurnir sóttu sinn rétt. Sú barátta hófst fyrir 7 árum. Deilan snérist um greiðslu á nærri 14 þúsund krónum á mánuði í hússjóð sem Jón segir að erfiðlega hafi gengið að fá skýringar á. Fyrir rest hafi komið í ljós að þetta gjald hafi m.a. verið notað til að greiða stjórnunarkostnað, húsvörslu, háar greiðslur fyrir púttvöll og fleira sem íbúarnir töldu að ekki ætti að greiða úr hússjóði.
„Hússjóður var ekki á sérreikningi og öllum aðfinnslum var mætt með hroka. Illa gékk að fá upplýsingar um bókhald sjóðsins“, segir Þorsteinn Þorsteinsson, annar íbúi sem stendur í stappi við leigusalann og er jafnframt formaður íbúafélags hússins.

Jón G Þórðarson/Ljósmynd Gígja

Jón G Þórðarson/Ljósmynd Gígja

Dýrt húsnæði

Ekki er ódýrt að leigja í Boðaþingi og greiðir Þorsteinn sem dæmi yfir 255 þúsund á mánuði í leigu fyrir um 100 fermetra íbúð. Ofan á það legst svo hússjóðurinn umdeildi og önnur gjöld. Hann aflaði sér upplýsinga um meðalleiguverð í Kópavogi. „Meðalleiga á fermetra er 1987 krónur á almennum markaði en hér er ég að greiða yfir 2550 krónur á fermetra. Þetta er 28% hærri leiga en á almennum markaði“. Íbúðirnar eru ekki frábrugðnar öðrum fjölbýlishúsum að því undanskyldu að gangar eru breiðari, handrið eru á göngum og allar dyr eru breiðari til að tryggja hjólastólaaðgengi.

Mikið er gert úr þjónusstigi í húsnæðinu, í bréfasamskiptum Naustavarar til leigendanna. Það er þó nokkuð ofmælt. Leigutakinn þarf t.d. að greiða sérstaklega fyrir öryggishnapp, aðgang að DAS klúbbnum og ef þarf að kalla til húsvörð í viðvik. Byggingin er samtengd þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar en þar er veitt þjónusta við aldraða sem er lögbundin.

Þurftu að fara fyrir dómstóla

Fimm íbúar í Boðaþingi skutu máli sínu til Kærunefndar húsamála sem úrskurðaði þeim í vil að öllu leyti. Það þurfti að fara með það mál fyrir dómstóla og 10. febrúar s.l. féll dómur þar sem íbúarnir höfðu betur; Naustavör var gert að endurgreiða hússjóðsgjaldið aftur í tímann, með dráttarvöxtum. Þetta er um hálf milljón á hverja íbúð. Dómurinn var afdráttarlaus og taldi greinilegt að líta yrði á samband leigusala og leigutaka, á þessum vettvangi, á sama hátt og á slíkt samband á almennum markaði. Dótturfélag Sjómannadagsráð hefur frest til 10 maí til að áfrýja dómnum en ekkert hefur komið fram um annað en að dómnum verði unað. Naustavör er þó, þrátt fyrir dóminn, enn að rukka óbreytt gjald. Það var einnig gripið til annara róttækari aðgerða gagnvart íbúunum.

Nauðung, kúgun, ótti og kvíði

Félagið sendi íbúunum bréf 14. mars síðastliðinn með viðhengdri óundirritaðri viðbót við leigusamninginn þeirra. Þar áttu íbúarnir að fallast á að hækka húsaleiguna með því að fella óbreytt hússjóðsgjald inn í hana. Íbúarnir áttu einnig að skrifa undir að þeir féllu frá öllum bótarétti sem fólst í dómnum. Íbúarnir fengu viku til að svara.

Þremur dögum eftir að bréf Naustavarar er dagsett sendi Þorsteinn Þorsteinsson tölvubréf til Sigurðar Garðarssonar, framkvæmdastjóra félagsins og fór fram á að þessi frestur yrði lengdur, að minnsta kosti um 10 daga.  „Margir íbúa hér þurfa utanaðkomandi ráðgjöf í svona málum og verulegan umhugsunarfrest. Í bréfinu er þeim gefin mikils til of stuttur tími til slíkrar ákvarðanartöku. (…)  Þarna gefst leigutökum ykkar minna en viku frestur til að taka veigamikla ákvörðun um búsetu sína og réttindi. Þetta er ekki viðunandi. Fyrir hönd Íbúafélags Boðaþings fer ég fram á – fyrir hönd félagsmanna – að þessi frestur til ákvarðanatöku verði framlengdur til 1. apríl, næstkomandi, hið minnsta“.  Þessum tölvupósti svaraði Sigurður samdægurs og hafnaði því alfarið að veita frest. Hafnaði því líka að eiga samskipti við íbúasamtökin um þetta mál. Segir í svari hans: „Leigusamningur Naustavarar er við einstaklinga sem eru þ.a.l. eru hver fyrir sig í viðskiptasambandi við félagið. Ég tek því aðeins við beiðnum af því tagi sem þú nefnir frá hverjum viðskiptavini fyrir sig“. Ítrekar svo framkvæmdastjórinn að fresturinn renni út eftir nokkra daga.
„Það er einfaldlega verið að fara í kringum þennan dóm með ólögmætri nauðung, eins og lögmaðurinn myndi kalla það“, segir Þorsteinn þungur á brún. „Þetta er fjárkúgun“, segir Jón Guðlaugur, „þeir læddust hér um húsið og fengu fólk til að skrifa undir“. Báðir segja að þessar aðfarir hafi mætt misjöfnum viðbrögðum meðal íbúanna sem sumir eru komnir vel á aldur enda meðalaldurinn í húsinu 82 ár. „Það fer dálítið eftir manngerð, aldri og getu“, segir Þorsteinn. „Fólk flutti hingað til þess að eiga rólegt ævikvöld en þetta hefur valdið því að fólk er kvíðið, ráðvillt og líður illa“.
Jón hefur einnig fundið fyrir miklu óöryggi og kvíða meðal margra og segist jafnvel hafa ráðlagt þeim sem líður illa að skrifa undir afarkosti félagsins. Það sé ekki allra að kljást við svona ástand, á þessum aldri og eiga yfir höfði sér að missa húsnæðið. „Ég lái engum að skrifa undir“, segir Þorsteinn.

Þorsteinn sem er 84 ára og Jón sem varð 86 ára í síðasta mánuði, vita ekki hversu margir íbúanna hafi skrifað undir en telja að minnsta kosti helmingur þeirra hafi beigt sig. Þeir tveir neituðu að skrifa undir og hafa nú orðið að gjalda þess. 27. mars barst þeim bréf þar sem Naustavör (sem skartar einkunarorðunum öryggi – afþreying – þjónusta) segir þeim upp húsnæðinu. Að óbreyttu eru þeir á götunni í september. Þeir íhuga nú næstu skref, jafnvel stofna málssóknarfélag til að leita réttar íbúanna gegn því sem þeir telja skýra lögleysu.

Þorsteinn Þorsteinsson/Ljósmynd Gígja

Þorsteinn Þorsteinsson/Ljósmynd Gígja

„Búum öldruðum áhyggjulaust ævikvöld“

Undir hatti Sjómannadagsráðs sem er sjálfseignarstofnun er viðamikill rekstur og stappar nærri að heildarvelta félaga sem heyra undir það nemi um sex milljörðum króna, samkvæmt upplýsingum sem Jón Guðlaugur hefur aflað sér. Hann og Þorsteinn eiga ekkert annað en hlý orð í garð þeirra sem hófu starf Sjómannadagsráðs með rekstri Hrafnistu í upphafi og fjáraflana m.a. í gegnum Happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna (DAS) sem auglýsti árum saman undir slagorðinu: „Búum öldruðum áhyggjulaust ævikvöld“. Nú sé Sjómannadagsráð afur á móti komið í viðamikinn rekstur sem sé undir litlu eftirliti og stjórnin í höndum „…gróðapúnga með tvær milljónir á mánuði í laun“, eins og Jón Guðlaugur orðar það. Þorsteinn telur að hugsjónaandinn sé horfinn úr starfinu og vitnar í Stefán Jónsson, fyrrverandi fréttamann, sem hann kynntist; „þegar góðmennskan verður að atvinnu á hún til að breytast í andhverfu sína“.

Engin hótun, segir Naustavör

Sigurður Garðarson

Sigurður Garðarson

Sigurður Garðarson, framkvæmdastjóri Naustavarar segir að 10-12 leigjendur hafi fengið uppsagnarbréf. Við hina hafi verið gerður viðbótarsamningur. Þessum 10-12 verði einnig boðinn nýr samningur en hann sé bara ekki tilbúinn.
Hann neitar því að skilgreina bréfið sem sent var íbúunum sem hótunarbréf. ,,Ég veit ekki hvað þú átt við með hótunarbréf“, segir Sigurður. „Við buðum fólki að halda sínum gamla leigusamningi með þessari breytingu og ef það er ekki höfum við engan annan kost, því leiguamningurinn eins og hann er, er ekki í lagi. Þannig að það er engin hótun í því. Það þarf bara að gera nýjan leigusamning”.
Framkvæmdastjórinn viðurkennir að ábyrgð á málinu liggi hjá félaginu. Það hafi fengið lögfræðiráðgjöf um að hægt væri að rukka í hússjóð með þeim hætti sem var gert. „Hefði félagið fengið betri ráð hefði það haft þetta inn í leigunni frá upphafi“.

Samanburður við leigu á almennum markaði en leigurverð í Boðaþingi er nærri 30% hærra en leiguverð í Kópavogi að meðaltali, er ekki réttmætur að mati Sigurðar.
„Það sem að skekkir þann samanburð er að í svona húsnæði eins og þessu er um 35% sameign og það er sá rekstur sem verið er að deila um í þessu máli. (…) Það er 30% meira af fermetrum á bak við hvern íbúa en í venjulegu húsnæði.“ Hann ítrekar einnig að greiðslurnar hafi verið fyrir þjónustu sem sannarlega var veitt. Sigurður segir að ef leigan sé ekki hækkuð lendi félagið í tapi og hafi raunar verið taprekstur síðustu ár.
„Margir spyrja af hverju lækkið þið ekki bara þessar greiðslur en við teljum okkur ekki fært að gera það. Þetta er „non-profit“ félag og því er þannig stillt að það standi undir sér”.

Leitt að valda ótta og kvíða

„Ótti og kvíði er eitthvað sem okkur þykir afar leitt að þetta sé að valda. Við höfum gert okkar ítrasta til þess að umgangast málið með það fyrir framan okkur að þetta sé mál sem sé óþægilegt miðað við stöðu þeirra viðskiptavina sem við erum að miða við … og meðal annars þess vegna höfum við lagt okkur mikið fram um að eiga persónuleg samskipti við fólk – ekki í gegnum fjölmiðla – og erum búnir að tala við marga“.
Sigurður segir aðspurður um vikurfrestinn sem íbúarnir fengu upphaflega hafi verið framlengdur en segir að ekki hafi verið hægt að semja um slíkan frest við íbúafélagið eins og formaður þess, Þorsteinn Þorsteinsson, fór fram á.
„Íbúafélagið er ekki aðili að þessu máli. Málið er á milli okkar og leigjendanna okkar. Að eiga samskipti við íbúafélag, sem ekki einu sinni allir íbúar eru aðilar að, það er tilgangslaust. (…) Við töluðum við hvern einasta leigutaka. Þannig var málið afgreitt.“
Sigurður vill að umfjöllun um málið taki mið af háum aldri íbúanna. „Það er ekki gott að það sé verið að alhæfa um einhverja hluti líkt og hefur komið fram í nokkrum spurningum þínum og ég hef reynt að skýra fyrir þér sko. Að þetta sé einhvers konar árás eða eitthvað svoleiðis. Þetta er bara verkefni sem þarf að greiða úr og við höfum lagt okkur í lima við það. Ég hef haft samskipti við alla, óháð því hvaða afstöðu þeir hafa í málinu. Hún er öll á vinsamlegum nótum. “

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images