Bretar kynnu að verða krafðir um 100 milljarða evra á næstu árum fyrir útgöngu úr Evrópusambandinu. Þetta er jafnvirði allrar landsframleiðslu Íslands í u.þ.b. fimm ár. Þetta er töluvert hærri tala en upphaflega var áætluð af forvígismönnum ESB í febrúar og endurspeglar harðari afstöðu annara ríkja sambandsins gagnvart Bretum vegna Brexit. Þessi kostnaður er kallaður „skilnaðarreikningurinn“ í breskum fjölmiðlum en David Davis, ráðherra Brexit þvertekur fyrir það í viðtali við BBC að þessi upphæð verði greidd.
Þungur tónn er í samskiptum stjórnenda ESB og Bretlands vegna samningaviðræðna um útgönguna og upplýsti þýska dagblaðið Frankfurter Allgemeine nýverið að Theresu May, forsætisráðherra Bretlands og Jean-Claude Juncker, forseta framkvæmdastjórnar ESB hefði lent saman í kvöldverðarboði í forsætisráðherrabústaðnum í Lunúnum nýverið. Juncker hefði upplifað veruleikafirringu hjá May og hefði lýst því yfir eftir fundinn að hatrammar samningaviðræður væru framundan.
Breskir ráðamenn hafa hafnað alfarði lýsingu á fundinum og kallað hana slúður frá Brussel. Theresa May lýsti því samt yfir í gær, aðspurð um þennan fund, að hún yrði fjandanum erfiðari við að eiga í samningaviðræðunum.
Kosningarnar sem forætisráðherrann boðaði óvænt til og haldnar verða 8. júní n.k. munu snúast að stórum hluta um Brexit enda yfirlýst að Íhaldsflokkurinn vill fá sterkara umboð til að semja af hörku um útgöngu. Hefur Theresa May lýst því yfir að gjá sé milli þings og þjóðar og meiri fyrirstaða gegn Brexit í þinginu í Westminster en meðal þjóðarinnar.
Nýjustu kannanir benda hins vegar til að vaxandi efasemdir séu meðal Breta um ágæti útgöngu úr ESB. Fyrir viku mældust þeir í fyrsta sinn fleiri sem telja útgöngu verri kost en hinn að vera áfram. 43% breta töldu rétt að yfirgefa ESB en 45% aftur á móti að þetta væri röng ákvörðun.
Gangi útgönguferlið eftir verður Bretland komið formlega út úr ESB árið 2019. Þó að hagkerfi Bretlands sé annað stærsta í ESB á eftir Þýskalandi er landsframleiðsla þess 17% af heildarlandsframleiðslu allra ríkjanna. Bretar eru um 13% af öllum íbúum á innri markaði ESB.
Mynd: May og Juncker – Frankfurter Allgemeine






