Þau tíðindi bárust frá bresku krúnunni í morgun að Filippus drottningarmaður og hertogi af Edinborg myndi senn hætta öllum embættisverkum. Filippus verður 96 ára í næsta mánuði og hefur sinnt ýmsum konunglegum skyldum við hlið Elísabetar II Englandsdrottningar. Síðasta embættisverk Filippusar var að vígja nýja stúku við krikketleikvang í gær.
Þessi mikilvægu tíðindi frá bresku konungsfjölksyldunni komu í kjölfar uppnáms í morgun þegar spurðist að allt starfslið konungsfjölksyldunnar hefði verið boðað til skyndifundar klukkan 10. Þegar sást til manns á vappi í grennd við fánastöng Buckingham hallar var óttast að fáni hennar yrði dreginn í hálfa stöng til merkis um andlát í konungsfjölskyldunni.
Fillipus lætur að störfum að eigin ósk og hefur verið að hugleiða þessi tímamót á ferlinum frá áramótum samkvæmt fréttum breskra fjölmiðla. Nú þegar hafa streymt inn velfarnaðaróskir frá stjórnmálamönnum til drottningarmannsins með þakklæti fyrir störf í opinbera þágu. Fillipus hefur staðið við hlið Elísabetar í 70 ár en hún varð 91 árs í liðnum mánuði.






