Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Heróínsali krafðist sýknu á grunni trúfrelsislaga en tapaði

$
0
0

Bandarískur heróínsali krafðist sýknu af ákæru á grunni lagaákvæða um frelsi trúarbragða. Áfrýjunardómstóll féllst ekki á lagarök mannsins en búist er við því að málið endi fyrir Hæstarétti Bandaríkjanna. Tvö dómafordæmi eru fyrir því að dreifing harðra fíkniefna hafi verið leyfð á grunni trúfrelsisákvæða.

Hinn ákærði, Timothy Anderson játaði greiðlega að hafa selt heróín þegar hann var handtekinn og kvaðst ekki hafa nein áform um að hætta því. Hann bar því við að salan væri hluti af trúboðsstarfi sínu enda væri hann lærissveinn upphafningar og dulhyggju. Hann hefði meðal annars stofnað trúarlegt góðgerðarfélag til að dreifa heróíni til „sjúkra, týndra, blindra, lamaðra, heyrnarlausra og dauðra í Konungsríki almættisins“. Hann fullyrti því að ákæran gegn sér væri brot á lögum sem sett voru árið 1993 til að koma í veg fyrir að stjórnvöld hömluðu einstaklingum að iðka sína trú.

Auglýsing

Anderson hafði nokkur lagarök með sér, því að samkvæmt dómafordæmi Hæstaréttar Bandaríkjanna hefur verið heimilað að nota annars ólögleg fíkniefni í trúariðkunum. Með vísan til fyrrgreindra laga var til dæmis litlum brasilískum söfnuði í New Mexico í Bandaríkjunum heimilað að flytja inn bruggdrykkinn ayahuasca, sem inniheldur ofskynjunarefnið DMT. Meðlimir safnaðarins notuðu hann við trúariðkanir en það hafa innfæddir á Amason svæðinu í Suður-Ameríku lengi gert. Indíánar í Bandaríkjunum hafa einnig haft heimild, á sambærilegum trúarforsendum, til að nota peyote, kaktusplöntu sem inniheldur meskalín. Bæði peyote og ayahuasca eru skilgreind í flokki hættulegustu fíkniefna samkvæmt Bandarískum lögum og þar er heróín einnig flokkað.

Röksemdir Andersson fyrir dómstólum voru meðal annars þau að hann væri að útdeila heróíni til fólks til að fá það smám saman ofan af fíkniefnanotkun. Hann kvaðst ekki aðhyllast nein skipulögð stofnanatrúarbrögð en trúarvitund hans hefði það að markmiði að verða eitt með almættinu. Anderson flutti mál sitt fyrir daufum eyrum dómara í undirrétti sem dæmdi hann í 27 ára fangelsi.
Áfrýjunarréttur sem úrskurðaði í síðustu viku, skoðaði mál Anderssons gaumgæfilega með vísan til fordæmanna með peyote og ayahuasca en taldi þau ekki fullægjandi. Eitt væri að skoða rétt hvers og eins til fíkniefnanotkunar á trúarlegum forsendum en engar sönnur hefðu verið færðar á það að viðtakendur heróínsins frá Anderson hefðu, á trúarlegum grunni, notað það til andlegrar nálgunar við almættið. Dómarinn taldi sölu og drefingu fíkniefna engan vegin lögverndaða trúariðkun. Anderson tapaði því áfrýjuninni en samkvæmt umfjöllun Washington Post um málið eru allar líkur á því að hann reyni að fá þeim dómi hnekkt fyrir Hæstarétti Bandaríkjanna.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images