Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Um fyrirmyndar leiðtoga

$
0
0

Jóhann Hauksson skrifar:

Hér verður lagt út af tveimur ágætum íslenskum orðum: fyrirmynd og leiðtogi.
Sá sem er fyrirmynd eða til fyrirmyndar sýnir gott fordæmi, eitthvað sem hann eða hún segir eða gerir er til eftirbreytni. Hagleikssmiður getur verið fyrirmynd og sá eða sú sem breytir rétt er það einnig.

Leiðtogi er forkólfur, forystumaður. Hans verkefni getur verið að „toga fólk á rétta leið“. En það er ekki alltaf þannig að hann geri það. Til þess þarf hann að vera „góð fyrirmynd“.
Sé hann það er hann fyrirmyndar leiðtogi.

Er Bjarni Benediktsson fyrirmyndar leiðtogi þjóðarinnar í embætti forsætisráðherra og áður fjármálaráðherra?

Teflonmaður

Bjarni dustar af sér kuskið eina ferðina enn, eins og teflonmaður sem ekkert loðir við, um leið og hann segir (þýtt yfir á íslenskt mannamál): Mér finnst allt í lagi að flokkssystir mín og vinkona, Ásdís Halla Bragadóttir, reikni sér og sínum arð út úr Klíníkinni þótt tekjur hennar séu að verulegum leyti fé úr vösum skattgreiðenda.

Eftir áralangar tilraunir með mismunandi rekstrarform í velferðar-, heilbrigðis- og menntakerfinu að hætti hægrimanna íhuga nú Svíar hvort ekki sé rétt að banna með lögum arðgreiðslur úr einkafyrirtækjum rekin eru með skattfé borgaranna. Það þarf ekkert að koma í veg fyrir að reynd séu ólík rekstrarform.

Áður en Bjarni úttalar sig svona á þingi hefur hann og flokkur hans svelt heilbrigðiskerfið fjárhagslega því ekki má leggja skatta á ríkt fólk, kvótagreifa og annað eignafólk. Og lýðskrumið felst ævinlega í að lofa öllum skattalækkunum.

Niðurstaðan er áþreifanleg. Kunningi minn bíður við skert lífsgæði í heilt ár eftir nýju hné og fær þá loks inni á sjúkrahúsi. Annar kunningi minn í svpuðum aðstæðum, með nokkur fjárráð, þoldi ekki slíka bið og hafði samband við einkaklíník sem skipti um annað hnéð í hvelli. Fyrir það greiddi hann eina milljón krónur.

Tvær stéttir. Ríkir og fátækir. Opinber heilbrigðisþjónusta á brauðfótum ýkir þennan stéttarmun og tyllir lævíslega undir röksemdir hægrimanna um að stoppa þurfi upp í götin með einkarekstri í heilbrigðisþjónustu.

Til fyrirmyndar? Til eftirbreytni?

Jafnréttið

Bjarni segir eitthvað á þá leið, eftir að hafa sniðgengið jafnréttislög við ráðningu í embætti í ráðuneyti sínu: Mér finnst að sannfæring mín (geðþótti) eigi að ráða en ekki einhver tölvuforrit sem ákveða hvað sé jafnrétti kynja.

Rifjað hefur verið upp að hann fór mikinn í þinginu á sínum tíma gegn Jóhönnu Sigurðardóttur, þáverandi forsætisráðherra, sem kærunefnd um jafnréttismál hafði gefið að sök að hafa brotið jafnréttislög er hún réði karl, sem hæfastur var talinn, í embætti skrifstofustjóra í forsætisráðuneytinu.

Bjarni vildi að Jóhanna væri fyrirmyndar leiðtogi og ætti ekki að brjóta jafnréttislög. Vandlæting hans og fordæming var mikil. Jóhanna átti að segja af sér.

Umboðsmaður Alþingis komst reyndar að annarri niðurstöðu og taldi kærunefnd jafnréttismála hafa farið út fyrir verksvið sitt með því að styðjast við eigin hæfnisviðmið þegar hún komst að þeirri niðurstöðu að Jóhanna hefði brotið jafnréttislög.

Ætlar Bjarni að segja af sér?

Auglýsing

Fiktað með skýrslur í þágu Flokksins

Bjarna láðist af einhverjum einkennilegum ástæðum að birta fyrir þingkosningar síðastliðið haust tvær skýrslur sem augljóslega gátu verið flokki hans mótdrægar í kosningabaráttunni. Önnur þeirra fjallaði um eignir Íslendinga í aflandsfélögum (man einhver eftir félagi sem hét Falson?).

Skýrslan var tilbúin fyrir þingkosningarnar en var birt 6. janúar síðastliðinn.
Hin skýrslan fjallaði um skuldaleiðréttinguna og var einnig tilbúin fyrir þingkosningarnar. Hún sýndi að mokað var 80 milljörðum króna í fjölskyldur sem lítið þurftu á slíkri aðstoð að halda. Skýrsla þessi var birt almenningi 18. janúar síðastliðinn.

Mikill er sá leiðtogi sem tekst að verja hagsmuni flokks síns fram yfir kosningar með svo snilldarlegum hætti.

Auðvelt er að sjá að Bjarni misbeitti dagskrárvaldi sínu sem ráðherra í þágu flokkshagsmuna. Hann var vakandi fyrir því valdi sem felst í því að taka enga ákvörðun, í þessu tilviki um birtingu skýrslnanna. Hann kaus að bæla umræðuna, halda málunum utan við þjóðmálaumræðuna með því að láta málin danka í skúffum sínum. Sá sem valdið hefur ræður stundum því hvað er á dagskrá stjórnmálanna og þjóðmálaumræðunnar. Bjarni hafði í þessu tilviki valdið til að „aðhafast ekki neitt“, birta ekki skýrslurnar og verja þannig flokkshagsmunina.

Er þetta til fyrirmyndar?

… og öll hin málin

Kári Stefánsson hjá DeCode spurði Bjarna áleitinna spurninga í blaðagrein á dögunum. Í fyrsta lagi spurði hann Bjarna hvort forsætisráðherrann ætti ekki að fordæma S-hópinn sem uppvís hafði orðið að sviksamlegu athæfi við kaupin á Búnaðarbankanum 2003. Eða gat Bjarni ekki tjáð sig um málið vegna þess að fjölskylda hans var sjálf á kafi í „bankaskítnum“ eins og Kári orðaði það.
Og gat Bjarni í öðru lagi heldur ekki tjáð sig afdráttarlaust gegn kaupum Goldman Sachs og vogunarsjóða á Arionabanka af sömu ástæðum? Var fjölskylda hans að undirbúa kaup á Íslandsbanka í gegn um Borgun sem Landsbankinn gaf Einari Sveinssyni, föðurbróður Bjarna, og fleirum?
Já Borgun. Var það þannig, spurði Kári í þriðja lagi, að þá fyrst komst skriður á gjafagjörning Landsbankans, þegar Einar Sveinsson, föðurbróðir Bjarna, stóð á gólfinu og talaði fyrir hönd kaupenda?

Loks spurði Kári um rútufyrirtæki í eigu forsætisráðherrafjölskyldunnar sem hann taldi njóta skattaívilnana og forréttinda, meðal annars vegna ákvarðana fjölskylduvinarins Ingimundar Sigurpálssonar, stjórnarformanns ISAVIA.

Þetta voru sem sagt spurningar Kára. Bjarna finnst þær ekki svaraverðar.

Taka tvö?

Afsögn margra ráðherra á Norðurlöndum á undanförnum árum og áratugum hefur orðið tilefni til fræðilegra athugana. Ein slík, sem gerð var í Svíþjóð, sýnir að almenningur og fjölmiðlar þola illa sérhagsmuna- og forréttindagæslu stjórnmálamanna Stjórnmálamenn verði að vera til „fyrirmyndar“ í orðum og æði og mega ekki leyfa sjálfum sér eitthvað sem þeir banna kjósendum. Því skyldu almennir skattborgarar fara að lögum ef ráðherrar gera það ekki?

Nú er verið að safna í nýja brennu, nýtt hrun, í boði Bjarna og Flokksins. Eins og ekkert hafi breyst. Eins og engir lærdómar hafi verið dregnir.

Óheft gróðahyggja og frændhygli ræður ferðinni líkt og fyrir hrun. Boðskapurinn er að „græða á daginn og grilla á kvöldin“. Munurinn er þó sá að nú hafa bæst við kerfisbundin skemmdarverk á velferðarkerfinu og ungt fólk í húsnæðisleit er í öngstræti.

Leiðtoginn Bjarni Benediktsson er sem sagt ekki til fyrirmyndar. Ekki frekar en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sem hrökklaðist frá völdum með skömm.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images