Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Skæður tölvuvírus lamar sjúkrahús í Bretlandi. Hefur breytt úr sér til nærri 100 landa. Vísbendingar eru um að Bandarískar leyniþjónustur hafi misst vírusinn úr eigin vopnabúri

$
0
0

Stórkostlegar tölvuárásir standa yfir og hafa yfir nærri hundrað lönd orðið fyrir barðinu á þeim. Árásin lamaði tugi breskra ríkisspítala í dag og þurfti að fresta lífsnauðsynlegum aðgerðum. Vísbendingar eru um að tölvukóði sem notaður var í árásinni hafi verið í tövuárásarvopnabúiri bandarískra leyniþjónsta sem misst hafi hann út úr höndunum.

Fyrstu fréttir um töluvárásina bárust í morgun þegar tölvur starfsmanna breska ríkisspítalans eða NHS læstust; öll gögn voru fryst í dulklóðun og krafa var gerð um greiðslu 300 bandaríkjadala í rafmyntinni bitcoin til að fá aftur aðgang að gögnunum. Þessi lokun á aðgengi í tölvukerfi spítalanna setti allan sjúkrahúsrekstur í Bretlandi í uppnám og voru að minnsta kosti 16 spítalar hálflamaðir (sumar fréttir segja 40). Þar komust starfsmenn ekki inn í nauðsynleg gögn og treystu sér ekki í aðgerðir án þeirra. Fresta þurfti fjölda aðgerða vegna málsins, meðal annars hjartaaðgerðum. Algjört uppnám hefur orðið í kjölfarið. Einn spítalastarfsmaður sagði við BBC í kvöld að sjúklingar myndu örugglega þjást og deyja, vegna árásarinnar. En dæmið varð stærra.

Auglýsing

Læsing gagna með heimtingu á lausnargjaldi er í raun vírus sem getur breytt hratt úr sér og það virðist hafa gerst í þessu tilviki. Greint var frá því í kvöld að orðið hafi vart við vírusinn í 99 löndum um allan heim skv. fréttum á BBC og CNN .  Ísland er ekki enn á þeim lista. Vírusinn virkar þannig að notendur fá einfaldlega skilaboð um að gögnin þeirra séu læst og dulkóðuð, heimtað er lausnargjald fyrir endurheimtingu gagnanna og yfirleit fylgir með niðurtalningarklukka sem segir hvenær gögnunum er eytt, ef lausnargjald er ekki greitt. Þetta er þjóðvegarán nútímans á internetinu, eða ígildi mannráns þar sem gögn eru tekin í gíslingu en ekki fólk.

Tölvuöryggissérfræðignar frá Kaspersky fyirtækinu tjáðu Guardian í kvöld að tölvuárásin hefði beinst gegn 45 þúsund tölvum í 74 löndum en talan hefur síðan hækkað í 99. Auk NHS í Bretlandi hefur spænska símafyrirtækið Telefonica verið smitað. Þegar leið á kvöldið hafði vírusinn breitt úr sér yfir Atlantshafið og var farinn að valda usla í Bandaríkjunum og í Suður Ameríku. Póstfyrirtækið FedEx varð meðal annars fyrir árás.

Ört vaxandi vísbendingar eru um að uppruni þessa eitraða tölvukóða sé hjá Bandarískum njósnastofnunum eða að minnsta kosti hafi þær vitað af honum, án þess að vara almenning við. New York Times slær því upp í kvöld að hakkarar hafi ráðist á tugi landa með gögnum sem stolið var frá NSA (Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna). Edward Snowden, uppljóstari og fyrrverandi starfsmaður NSA var ekki í vafa í sínu tísti í kvöld. Hann vísar til fyrri fregna, sem WikiLeaks benti meðal annars á, af því að NSA hefði safnað í vopnabúr sitt töluvárásarvopnum af því tagi sem beitt var í dag en misst stjórnar á þeim.

Snowden segir: „Ef NSA hefði upplýst um öryggisgallann, sem notaður var til árása á spítala, þegar hann „fannst“ en ekki þegar þeir misstu hann úr höndunum, hefði þetta aldrei gerst“.

 

snowden - tölvuárás

Hakkarahópur sem kallar sig Shadow Brokers deildi vírusnum í liðnum mánuði og fylgdi með orðsending um að það væri gert til að mótmæla Donald Trump. Vírusinn, sem kallaður er WannaCry, er talinn uppruninn frá NSA og leggst aðallega á gamlar útgáfur af Windows stýrikerfinu. Framleiðandinn sendi frá sér uppfærslu fyrir tveimur mánuðum sem átti að hindra að vírusinn veldi usla en talið er að flestir hafi látið hjá líða að uppfæra kerfin af ótta við að virknin myndi skaðast. Í Bretlandi hefur verið á það bent að sparnaður í opinbera heilbrigiðiskerfinu hafi leitt til þess að þar sé enn verið að nota stýrikerfi sem sé yfir 15 ára gamallt og því varnir veikar gagnvart árásum af þessu tagi.

AFP fréttastofan greinir frá því að hluti af tölvum rúsnneska innanríkisráðuneytisins hafi orðið fyrir smitun af tölvuvírusnum. Þetta hafi verið staðfest af talsmanni ráðuneytisins. Fleiri aðilar í Rússlandi hafa orðið fyrir árásinni og meðal annars leitt til röskunar hjá einu af stærri símafyrirtækjum landsins.

Fréttin verður uppfærð.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images