Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Blóðið í Bagdad og Manchester

$
0
0

Kristinn Hrafnsson blaðamaður skrifar:

Að minnsta kosti 22 eru látnir í tveimur sjálfsmorðssprengjuárásum í miðborg Bagdad í gærkvöld og í morgun. Fimmtán létust og þrjátíu særðust í gærvköld þegar spengja var sprengd fyrir framan vinsæla ísbúð í Karrada hverfinu í miðborginni þegar fjölskyldufólk flykktist þangað með börn sín til að fá sér rjómaís. Nú í morgun var önnur sprengja sprengd við Al-Shahada brú í miðborginni. þar létust að minnsta kosti sjö og 30 særðust. Fréttir eru enn óljósar af tilræðinu í morgun.

Myndir á samfélagsmiðum sýna blóðugan vettvang frá árásinni í gærkvöld; líkamshlutar, örvingluð börn að leita forledra sinna og foreldrar að leita barna. Föstumánuðurinn Ramadan stendur yfir en fastan er bundin við daginn og þegar sólin sest fara fjölksyldurnar til veisluhalda eða á staði eins og ísbúðina í Karrada. Sjálfsmorðssprengjumaðurinn sat í bíl sínum, hlöðnum sprengjuefni sem hann sprengdi þegar mannfjöldinn var hvað mestur fyrir framan ísbúðina.

ISIS lýsti því yfir að þarna væri verði að eyða shia múslimum sem eru trúvillingar og réttdræpir að mati þessara öfgafullu glæpasamtaka. Í augum ISIS manna er enginn munur á þeim og fórnarlömbum árásarinnar í Manchester á mánudaginn fyrir viku. Enn er ekki að finna uppsláttarfréttir af þessum tilræðum í Bagdad á forsíðum helstu netmiðla í Bretlandi eða raunar annara Evrópuríkja, samkvæmt skjótri yfirferð. Mannskaðinn í Bagdad og í Manchester er sá sami.

Auglýsing

Fórnarlömbin i Bagdad og Manchester eru að gjalda fyrir að glæpasamtökin sem kenna sig við Islamska ríkið eru að missa undirtökin og tapa smám saman stöðu sinni í Sýrlandi og Írak. Í Mosul, í norðurhluta Íraks er hægt og bítandi verið að hrekja þá hverfi úr hverfi í hernaðaraðgerðum sem útheimta skelfilegt mannfall óbreyttra borgara á sama hátt og gerðist í Aleppo í Sýrlandi. Minna fer fyrir fréttum af mannfallinu í Mosul en blóðbaðinu í Aleppo og minna verður sagt frá nöfnum hinna látnu í ísbúðinni í Karrada og við Al-Shahada brú en fórnarlambanna á tónleikunum í Manchester.

Í hvorugu tilfellinu er hirt um að rifja upp að ISIS er skilgetið afkvæmi eftirleiks hinnar ólögmætu innrásar í Írak árið 2003 sem blés í glæður átaka á milli shia og sunni múslima og skóp frjóan jarðveg fyrir glæpahunda ISIS sem hafa svo fengið dyggan stuðning frá vinaríkjum Bandaríkjamanna og Breta á svæðinu.

Þeir sem þurfa núna að sefa harm sinn eftir að ættingjar þeirra voru drepnir í Bagdad í gærkvöld og í morgun, á helgasta hátíðartíma múslima, verður samt væntanlega hlíft við yfirlýsingum um að Islam séu óumflýjanlega trúarbrögð haturs og dauða.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images