Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ekkert ofbeldi í Reykjavík

$
0
0

Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar

Ekkert ofbeldi í Reykjavík
Borgarstjórn er einhuga um að ofbeldi eigi ekki að líðast í Reykjavík og að stjórnvöld í höfuðborginni eigi að axla ábyrgð svo að gestir og íbúar megi finna til öryggis í umhverfi sínu. Til að vinna að þessu marki og undirstrika mikilvægi þess, samþykkti Borgarstjórn Reykjavíkur að minni tillögu, á sérstökum hátíðarfundi kvenna í tilefni af 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna, að stofna Ofbeldisvarnarnefnd Reykjavíkur.

Ofbeldisvarnarnefnd Reykjavíkur
Ofbeldisvarnarnefnd er ætlað að vera vettvangur samráðs borgarfulltrúa og sérfræðinga á sviði ofbeldisvarna og stuðla að upplýstri umræðu um ofbeldi á öllum sviðum borgarinnar og öruggara borgarsamfélagi. Þar sitja, auk starfandi borgarfulltrúa, fulltrúar frá Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, Stígamótum, Samtökum um kvennaathvarf og Embættis landlæknis.

Ofbeldisvarnarnefnd hefur allt frá stofnun beint sjónum að forvörnum gegn ofbeldi og samhliða unnið að aðgerðaáætlun gegn ofbeldi í Reykjavík. Þar innanborðs eru m.a. verkefni eins og Safe cities (í samstarfi við UN Women), Örugg miðborg (samkomulag Reykjavíkurborgar, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, Samtaka aðila í ferðaþjónustu og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins um ofbeldislausa og örugga skemmtistaði) og Nordic safe cities (samstarf höfuðborga Norðurlandanna).

Samstarfsverkefni  Reykjavíkurborgar, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Kvennaathvarfsins um bætt verklag og aukna þekkingarmiðlum í heimilisofbeldismálum, hefur einnig verið fyrirferðarmikið í starfi nefndarinnar. Verkefnið hefur enda gefið afar góða raun, veitt þolendum og gerendum betri þjónustu og bætt stöðu barna sem búa við heimilisofbeldi.

 

Auglýsing

 

Aðgerðaráætlun gegn ofbeldi
Ofbeldisvarnarnefnd vinnur nú að gerð aðgerðaráætlunar gegn ofbeldi í Reykjavík. Vonir standa til að áætlunin líti dagsins ljós síðar á þessu ári en þar verður reynt að horfa heilstætt til allra þátta sem skipta máli í baráttunni gegn ofbeldi.

Í því ljósi er t.d. mikilvægt að skoða skipulag borgarinnar út frá öryggisþáttum og tryggja viðunandi eftirlit og löggæslu. Ekki síður og raunar mun mikilvægarar, er að ráðast að rót ofbeldisins með því að leggja áherslu á ábyrgð gerenda og efla forvarnir og fræðslu gegn ofbeldi. Jafnréttis-, kynja-, hinsegin- og kynfræðsla í skóla- og frístundastarfi Reykjavíkurborgar er mikilvægur liður í slíkri fræðslu. Börn og ungmenni þurfa að hafa þekkingu til að setja sér og öðrum mörk, horfa með gagnrýnum huga á samfélagsgerðina og skoða hvaða áhrif fordómar og staðalmyndir hafa á viðhorf okkar og framkomu.

Auk mikilvægs samráðs, þekkingarmiðlunar og stefnumótunar á vettvangi Ofbeldisvarnarnefndar hefur Borgarstjórn Reykjavíkur þegar samþykktar þrjár mikilvægar tillögur nefndarinnar.

 

Bjarkarhlíð – miðstöð fyrir þolendur ofbeldis
Í upphafi árs var að tillögu nefndarinnar, ráðist í stofnun Bjarkarhlíðar – miðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis. Þetta mikilvæga samstarfsverkefni ríkis, borgar og grasrótarsamtak er heldur betur að sanna tilverurétt sinn þessa dagana. Þar starfa nú félagsráðgjafar, lögregla og fjöldi grasrótarsamtaka og eftirspurn eftir þjónustunni er meiri en við gerðum ráð fyrir.

Á liðnum vetri var einnig samþykkt að ráðast í gerð heilstæðrar viðbragðsáætlunar vegna mansals og er sú vinna í fullum gangi á vettvangi borgarinnar.

 

Upprætum ofbeldi gegn börnum
Þá var á sameiginlegum fundi Ofbeldisvarnarnefndar og Borgarstjórnar í síðasta mánuði, samþykkt að tillögu nefndarinnar, að innleiða verkefnið „Opinskátt um ofbeldi“ í öllum leikskólum, grunnskólum og frístundaheimilum borgarinnar. Markmið verkefnisins er að auka þekkingu barna á ofbeldi og gera þau fær um að ræða um ofbeldi opinskátt og taka afstöðu gegn því. Einnig er verkefninu ætlað að tryggja að barn þurfi bara að segja einu sinni frá og að starfsmenn borgarinnar sem vinna með börnum séu þjálfaðir í að sjá merki um að barn sé beitt ofbeldi.

Með stofnun og starfsemi Ofbeldisvarnarnefndar hefur Reykjavíkurborg sýnt í verki, að baráttan gegn ofbeldi er mikilvægt forgangsmál. Við munum áfram vinna að því að tryggja öryggi allra íbúa og gesta borgarinnar og koma í veg fyrir öfgahyggju. Borgin á að vera opin fyrir alla, alltaf, óháð öllu.

 

Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi og varaformaður Samfylkingarinnar og formaður Ofbeldisvarnarnefndar Reykjavíkur.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images