Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Hryðjuverkið í Grenfell turninum

$
0
0

Kristinn Hrafnsson skrifar:

Hættan af hryðjuverkum öfgamanna á Vesturlöndum er ekki að aukast ef marka má tölur yfir fjölda ódæðisverka og fjölda þeirra sem hafa látist, eins og bent var á í Kvennablaðinu. Helmingi færri létust í hryðjuverkum á fyrri helmingi þessa árs en á sama tíma í fyrra. Allt síðasta ár létust 183 í hryðjuverkum í Vestur-Evrópu og Norður-Ameríku. Það sem af er árinu hafa 47 látist í 11 hryðjuverkum.

Mannskæðasta hryðjuverkið á þessu ári var í Arena tónleikahöllinni í Manchester 22. maí sl. þar sem 22 létust. Þetta var mesta mannfall í hryðjuverki í Bretlandi frá því sprengjur voru sprengdar í almenninssamgöngukerfi Lundúna 7. júli árið 2005 og 52 létust.

Í brunanum í Grenfell íbúðarturninum í London á dögunum fórust að minnsta kosti 79 en enn á eftir að bera kensl á lík svo þessi tala á eftir að hækka. Bruninn er ekki kallaður hryðjuverk en vera kann að hann flokkist undir manndráp af gáleysi.

Ef til vill ætti að flokka brunann sem hryðjuverk og beina afleiðingu af öfgafullum trúarbrögðum sem heltekur Vestræn samfélög og hafa leitt af sér margfaldann þann mannskaða en rekja má til öfgafullra islamista. Rannsókn á brunanum er ekki lokið en vísbendingar eru um að þennan mannskaða megi rekja með beinum hætti til tilrauna fasteignafélagsins sem rak íbúðarturninn til þess að lágmarka útgjöld sín. Það var sparað í eldvörnum.

Auglýsing

Í þættinum Panorama á BBC er greint frá því að nýleg eldfim klæðning utan á húsinu hafi virkað eins og tuskur sem vættar eru í olíu og vafðar um prik, til að búa til kyndil. Vegna klæðningarinnar varð íbúðarturninn að logandi kyndli á svipstundu. Það vantaði úðara utan á bygginguna sem eru nauðsynleg vörn ef á annað borð er klætt með eldfimu efni. Það vantaði einnig úðarakerfi inni í byggingunni. Brotalamirnar voru mun fleiri.

Vitneskjan um hættuna var til staðar og margsinnis var bent á að brýnna úrbóta væri þörf, sérstaklega eftir mannskæðan bruna árið 2009. Þverpólitísk bresk þingnefnd um brunavarnir hefur stöðugt barist fyrir úrbótum en ekki hefur verið á hana hlustað. Endurskoða átti brunavarnarreglur 2013 en það hefur enn ekki verið gert. Fram kom í Panorama að að minnsta kosti fjórir ráðherrar hafi hunsað málið eða ýtt því á undan sér. Sá síðasti var Gavin Barnwell, sem nú er einn helsti samstarfsmaður Theresu May, en hann fékk harðorða ábendingu um grafalvarlega stöðu mála í september á liðnu ári.
Þegar engin efnisleg svör höfðu borist frá honum í apríl var erndið ítrekað en málið var sagt í vinnslu.

Mannskæðasta hættan sem Vesturlandabúar þurfa að horfast í augu við er stefna sem setur auðgildið ofar manngildinu, hvort sem sú stefna birtist í opinberum rekstri eða einkarekstri. Sú stefna drepur.

Vopnuð lögregla gagnast aldrei þeim sem vilja bjarga mannslífum og berjast gegn þeirri stefnu. Líklegra er að vopnin gagnist þeim sem vilja verja stefnuna.
Það er verið að minna almenning rækilega á það núorðið með skýrum og afdráttarlausum hætti.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images