Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Breskir læknar mótmæla niðurskurði og einkavæðingu

$
0
0

Breska læknafélagið, British Medical Association (BMA), ásakar stjórn Theresu May og heilbrigðisráðherra hennar, Jeremy Hunt, um að svelta opinbera heilbrigðiskerfið með skipulegum hætti í viðleitni til að auka einkavæðingu innan kerfisins. Þessi ályktun læknafélagsins var samþykkt á ársfundi þess í Bournmouth.

Samkvæmt frétt í Independent segir nýkjörin formaður BMA að stjórnarstefnan í þessa veru sé meðvituð og verði að andmæla. „Ríkisstjórnin talar um nýjar fjárfestingar en í sömu andrá krefur okkur um að spara þrjú pund fyrir hvert eitt pund sem er varið“, og bætti við: „Til að tryggja gæði og öryggi verður að stöðva sparnaðaraðgerðir og blóðugan niðurskurð“.

Breska heilbrigðisráðuneytið hafnar alfarið fullyrðingum læknanna og segir að framlög ríkisstjórnarinnar til opinbera heilbrigðiskerfsins séu hærri en nokkru sinni fyrr. Samþykkt læknafélagsins sé „sorglega úr öllum tegslum við raunveruleikann“

Mynd: Independent


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283