Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Menntum börnin okkar og unga foreldra

$
0
0

Ég hef velt því talsvert fyrir mér að lengi hvernig við getum breytt þessu samfélagi sem við búum í. Við vitum að meira en þriðjungur þjóðarinnar kýs án hugsunar. Vitum að þeir sem ekki eru upplýstir láta skoðanir annarra hafa áhrif á sig. Vitum að meira en helmingur stuðningsmanna hægri aflanna er fólk sem telur sig stærra og merkilegra með því að halla sér að þeim sterka. Vitum að þeir sem ekki eru nægilega upplýstir er fólkið sem kemur mönnum eins og SDG og BB til valda.

Mér er alveg sama þó einhverjum finnist ég hrokafull með því að halda þessum skoðunum mínum á lofti. Vegna þess að ég hef velt þessu mikið fyrir mér að undanförnu, lagst í lestur og kynnt mér málin hika ég ekki við að halda þessu fram.

Þegar fréttir bárust um að þeir sem styðja lögregluna gráa fyrir járnum í miðborg Reykjavíkur væru samkvæmt skoðanakönnunum þeir tekjulægstu og minna menntuðu fannst mér eins og spurningu minni væri svarað, að hluta minnsta kosti. Þá áttaði ég mig á að það þyrfti að mennta þetta fólk betur. Það væri hugsanlega lykilinn að jöfnuði, hagsæld og velferð að mennta þessa þjóð betur. Rétt eins og að byggja hús, verður grunnurinn að vera traustur. Samfélag eins og okkar þarf að sama skapi góðan grunn og einmitt þar verðum við að byrja.

Auglýsing

Við viljum breytingar og erum orðin þreytt á að horfa aftur og aftur á stjórnvöld gera sömu mistökin. Orðin þreytt á að öskra og ná ekki að opna eyru þeirra sem aftur og aftur kjósa sama kjaftæðið yfir sig. Því segi ég að við þurfum að byrja frá grunni og byggja upp sterkt samfélag. Og það er ekki eftir neinu að bíða. Með því að leggja áherslu á menntun frá upphafi, leysum við svo mörg vandamál.

En það er ekki nóg að byrja á börnunum, það þarf að taka foreldrana sem á börnin og upplýsa um hvernig það á að ala upp börnin sín og hvernig forgangsröðunin er.

Forgangsröðunin er ekki sú að vinna sig til andskotans á meðan börnunum er ekki sinnt. Það er ekki í forgangi að hugsa um carrierinn völd og áhrif honum samfara. Það er forgangsatriði að búa börnunum sem eftir 20 ár verða komin til manns stöðugleika og öryggi, væntumþykju og samveru, en ekki fleiri tölvuleiki og járnarusl.

Ef við byrjum núna á unga fólkinu sem er að eiga sín fyrstu börn og fylgjum þeim eftir í uppeldismálum erum við á réttri braut.
Bendum þeim á að það sé ekki vænlegt til árangurs að skamma og hegna börnum fyrir að gera eitthvað sem þau hafa bannað. Bendum þeim á að boð og bönn, stífni og þvermóðska er ekki heldur vænleg til árangurs.

Bendum á að það séu ekki góðir uppalendur sem svara beiðni barna og unglinga fjórum sinnum nei og síðan með jái. Við vitum líka að börn og unglingar sem ávalt fá skammir þegar þeim verður á, segja ekki satt frá. Það er augljóst hvers vegna og samskipti sem byggjast á óheiðarleika, lygi, óöryggi og vantrausti getur ekki skilað neinu góðu.

Ég þarf ekki að vera sálfræðingur, kennari eða uppeldisfræðingur til að vita að það sem öllu skiptir er stöðugleiki, öryggi traust og ábyrgð. Að börn geti treyst foreldrum fyrir misgjörðum án ótta. Að þau búi við öryggi sem felst í festu og stöðugleika.
Að þeim sé treyst sem byggir upp ábyrgðarkennd þeirra. Að þeim sé sýnd virðing, umhyggja og hlýja sem gerir þau opnari tilfinningalega. Og síðan og ekki síst er það samvera við foreldrana þar sem foreldrar sýna í verki að þau beri virðingu fyrir hvort öðru. Gagnkvæm virðing og aftur virðing fyrir börnum. unglingum og foreldrum. Börn eru manneskjur og unglingar eru ekki hálfvitar. Þau vilja að komið sé fram við þau og talað við þau og til þeirra eins og manneskjur.

Auglýsing

Það er okkar eldri að sýna gott fordæmi og við höfum ekki leyfi til að hunsa eða gera lítið úr börnum og unglingum. Það er okkar að hlusta, virða og fræða. Það er ekki til neitt „af því bara.“ Það er ástæða fyrir öllu og þó við vitum ekki allt er það allt í lagi að viðurkenna það, í stað þess að segja: af því bara ég segi það.

Hugsið ykkur að börnin sem fæddust í gær verða tvítug eftir örfá ár í okkar huga. Tuttugu ár er enginn tími í mínum huga. Jafnvel þótt það taki tuttugu ár frá fæðingu að verða fullorðin manneskja. Tíminn er afstæður og við þau eldri vitum að hlutirnir gerast ekki einn tveir þrír, en því fyrr sem við áttum okkur á að lykilinn er að mennta þau sem eiga framtíðina, en ekki með blóðugri byltingu, argi og þrasi.

Ég lifi það tæpast en það er bara allt í lagi, svo lengi sem ég lifi það að sjá að við leggjum vel í grunninn er ég örugg um árangurinn.
Auðvitað veit ég að hugarfarsbreyting tekur langan, langan tíma, en við verðum að byrja á byrjuninni og vinna okkur þaðan. Með því náum við markmiðum okkar.

Mynd: Pixabay


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images