Innrömmuð forsíða tímaritsins Times frá mars 2009 með mynd af núverandi forseta Bandaríkjanna hangir á veggjum fimm golfklúbba í eigu Donalds Trump.
Yfirskriftin er „The Apprentice is a television smash!“ og vísar til sjónvarpsþátta sem Trump stýrði á þeim tíma.
Forsíðan er fölsuð og hefur tímaritið farið þess á leit að þetta falsaða plagg verði fjarlægt. Talsmaður Times segir að myndin hafi aldrei birst í tímaritinu en það var Kate Winslet sem prýddi forsíðu þess tölublaðs sem um ræðir.
Hér að ofan má sjá hina raunverulegu forsíðu til samanburðar við forsíðu Trumps.