Fréttatilkynning frá Krabbameinsfélagi Íslands
Jón Eggert Guðmundsson syndir í kringum Ísland til styrktar Krabbameinsfélaginu
Fyrir ári síðan hjólaði Jón Eggert strandvegahringinn sem er yfir 3 þúsund kílómetrar og 11 ár eru síðan Jón gekk sömu leið. Í öll skiptin til styrktar Krabbameinsfélaginu.
Jón Eggert Guðmundsson hefur lagt af stað í fyrsta áfanga sundsins í kringum Ísland. Sundið mun taka alls 7 ár og hefur aldrei verið synt áður. Jón hefur kajakræðara með sér og siglingarklúbburinn Þytur fylgir honum einnig hluta leiðarinnar. Jón stefnir að því að synda 200-250 km leið í fyrsta áfanga; norðurströnd Reykjanesskagans, megnið af Reykjavík, Hvalfjörð, Akranes að Borgarfirði og einnig megnið af norðurströnd Snæfellsness. Hann hefur nú synt um 100 km leiðarinnar og allt gengið áfallalaust.
Þeir sem vilja heita á Jón Eggert og styðja Krabbameinsfélagið geta lagt inn á reikning félagsins 0301-26-706 kt. 700169-2789 eða farið inn krabb.is og gerst Velunnarar með mánaðarlegu styrktarframlagi.
Starfsfólk Krabbameinsfélagsins þakkar Jóni Eggerti ómetanlegan stuðning í þágu baráttunnar gegn krabbameini og óskar honum allra heilla í þessu metnarfulla og ævintýralega verkefni.
Nánari upplýsingar veita:
Jón Eggert Guðmundsson í síma 696 1311
Kolbrún Silja Ásgeirsdóttir, kynningar- og fjáröflunarstjóri Krabbameinsfélagsins í síma 663 9995