Hlýnun jarðar og síminnkandi jöklabreiður í Ölpunum hafa leitt til fjölda líkfunda þeirra sem hafa farist fyrir árum eða áratugum og grafist í ísinn. Búist er við að hundruð líka munu finnast á næstu árum enda hafa jöklarnir gleypt marga sem hafa farist af slysförum, sjálfsvígum eða jafnvel verið komið fyrir með saknæmum hætti. Fjallað er um þetta í Guardian.
Nýjasti líkfundurinn í Sviss var á þriðjudag í Saas dal í kantónunni Valais og reyndist vera af manni sem ekkert hefur spurst til í 30 ár. Líkið fannst af tveimur fjallgöngumönnum sem gengu fram á hönd og skópar sem stakkst út úr jöklinum.
Viku áður fannst lík svissneskra hjóna sem týndust fyrir 75 árum eða 15. ágúst 1942. Þetta voru Marcelin og Franscine Dumoulin sem hurfu þegar þau fóru til að mjólka kýrnar sínar hátt á heiði.
Bráðnun svissnesku jöklanna er hraðari en nokkru sinni fyrr og er talið að þeir hafi tapað massa sem er ígildi eins kúbikkílómetra (jafngildi 900 milljarða litra af vatni) á einu ári. Þó að rýrnun jökla sé hröð síðasta áratuginn hafa þeir verið að tapa massa sínum í meira en eina og hálfa öld, að minnsta kosti. Þannig þöktu jöklar 1735 ferkílómetra lands í Sviss árið 1850 en þekja nú helming þess svæðis eða um 890 ferkílómetra.