Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Vítishiti í Suður-Evrópu kenndur við myrkrahöfðingjann

$
0
0

Viðvörun hefur verið gefin út vegna ofurhita í suðurhluta Evrópu sem hefur fengið heiti eftir kölska sjálfum eða Lúsifer. Hitinn er og verður víða óbærilegur eða 40 gráður og þar yfir. Óttast er að margir týni lífinu í þessum ógnarhita, einkum þeir sem standa höllum fæti eins og ungir, aldraðir og sjúklingar með hjartabilun, háan blóðþrýsting og astma. Hitinn verður að líkindum mestur í Ungverjalandi, Rúmeníu, Albaníu, Serbíu og nálægum löndum en víða á Spáni, Frakklandi og Ítalíu hefur einnig verið varað við ofurhitanum.

Auglýsing

Á Spáni heufur verið gefin út ofurhitaviðvörun í 30 af 50 héruðum landsins og getur hitinn þar farið í 44 gráður. Heilbrigðisyfirvöld í Belgrad hafa ráðlagt fólki að setja rök handklæði í glugga þar sem ekki er loftkæling og forðast áreynslu og áfengi. Í þessari höfuðborg Serbíu var hærri hiti en t.d. í Kairó í Egyptalandi og íbúarnir flykktust að ám og gosbrunnum til þess að kæla sig.
Hitabylgjan hefur leitt til þess að margir slógu ferðalögum á frest enda töluvert álag að fara um í þessum hita. Í breska blaðinu Sunday Times er sá valkostur kallaður „staycation“ sem er þá e.k. hitadrifið afbrigði af innipúkanum.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283