Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Plata mánaðarins ágúst 2017 – Jimi Hendrix – Are you Experienced

$
0
0

Bíddu bíddu, hvað er nú þetta, sagði ég við sjálfan mig þegar ég kom að útstillingarglugganum hjá Ingrid í Hverfitónum að Hverfisgötu 50 og sá þar útstillt plötu með þrem blómadrengum á framhliðinni og þar stóð skrifað stóru letri; Jimi Hendrix Are You Experienced Are You Experienced .
Titillinn var nokkuð afgerandi en þar sem ég var orðinn 17 og mátti taka bílpróf, þóttist ég heldur betur reyndur og vippaði mér snarlega inn í helgidóminn hjá hinni þýsku Ingrid. Við vorum orðin góðir kunningjar, þar sem ég hafði vanið komur mínar nánast daglega í búðina til hennar síðasta árið enda hafði Ingrid umboð fyrir þýsk og bresk eðalmerki eins og „Dautsche Grammophon“ og „Polydor“ og þaðan komu sko flottar plötur.
„Sæl“, sagði ég og leit í kringum mig eftir plötunni en sá hana hvergi, svo ég gekk að glugganum og benti á útstilltu plötuna; „Hvað er þetta eiginlega“? Og leit stórum spurningaraugum á Ingrid.
-Ja, ég veit það eiginlega ekki, var að fá þessa plötu til prufu og hef ekki hlustað á hana en mér skilst á bréfinu með sendingunni að þetta sé tríó sem spili háværa bítlatónlist.
Þessi plata virkar spennandi, hugsaði ég skoðaði hana í krók og kring, „ég tek hana“ og rétti Ingrid plötuna.
-Nú varst þú heppinn, ég fékk bara þrú eintök og þetta var það síðasta.

02-JIMI_HENDRIX-BM-688x451

Mynd KFK: Gott að hanga í rúminu

Jimi Hendrix

Hann fæddist í Seattle, Wasington 27. nóvember 1942 og var skírður James Marshall Hendrix en kallaður Jimi. Þegar hann var 15 ára komst hann í tæri við gítar og það var ást við fyrstu sýn. Um svipað leyti gekk hann sjálfviljugur í herinn og fékk þjálfun í fallhlífastökki en var útskrifaður ári síðar úr herþjónustunni sökum meiðsla í baki. Herinn hafði þó veitt honum húsaskjól og fæði en líka næði til að þjálfa sig á gítar garminn sem var eins og allir aðrir gítarar, sniðinn fyrir rétthenta en Jimi var örvhentur svo allt snéri öfugt. Hvort hann vandi sig á öfugan gítar eða snéri strengjunum er ekki á hreinu en þegar herþjónustunni lauk ákvað hann að flytja til Clarksville í Tennessee og freista gæfunnar.

Hann þótti efnilegur gítarleikari og fékk verkefni sem undirleikari hjá the Isley Brothers og Little Richard sem hann spilaði með fram til ársins 1965. Tekjurnar voru litlar og Jimi fannst hann hjakka í sama farinu, sama hvað hann reyndi til að breyta stöðunni. Þegar hann átti frí var farið í einhvern klúbbinn og spilað (djammað) með þeim sem vildu spila með honum. Eitt kvöldið birtist Chas Chandler bassaleikari úr The Animals á staðnum eftir ábendingu og ummælum frá vinkonu hans Lindu Keith (þáverandi kærustu Keith Richards) um þennan sérstæða gítarleikara. Chas var þá farinn að hugsa sér til hreyfings úr hljómsveitarbransanum yfir í umboðsmanninn og þetta sama kvöld gerir hann samning við Hendrix um að koma til Englands, stofna hljómsveit og gera plötu. Allt var að gerast og Hendrix kláraði vinnutörn með Curtis Knight and the Squires, áður en hann flutti til Bretlands seinnipart ársins 1966.

Lagið „Hey Joe“ sem er eftir söngvarann Billy Roberts og Chas heyrði Hendrix flytja árið áður á sinn sérstæða hátt, var fyrsta lagið sem var tekið upp með nýju hljómsveitinni „The Jimi Hendrix Experience“ og gefið út á smáskífu.

Hey Joe, where you goin’ with that gun of yours?
Hey Joe, I said where you goin’ with that gun in your hand, oh
I’m goin’ down to shoot my old lady
You know I caught her messin’ ’round with another man
I’m goin’ down to shoot my old lady
You know I caught her messin’ ’round with another man
And that ain’t too cool

Jimi Hendrix Experience – Hey Joe Live – https://www.youtube.com/watch?v=W3JsuWz4xWc

Mynd KFK: Bakhjarlar

Mynd KFK: Bakhjarlar

Bassi og trommur

Eftir að Chas Chandler og Mike Jeffrey umboðsmanni The Animals tókst að sannfæra Hendrix um að koma með þeim til Englands með loforði um frægð og frama, var rokið í að finna réttu meðreiðarsveina Hendrix. Það var auglýst í blöðum eftir trommara og bassaleikara í nýja þriggja manna hljómsveit sem væri í bígerð. Margir tónlistarmenn mættu í prufur en týpurnar sem leitað var að virtust sitja heima. Loksins mætti einn gítarleikari og fyrrum listnemandi á svæðið og sagðist geta spilað á gítar. Menn litu hvor á annan og sögðu; en getur þú spilað á bassa? Já, örugglega sagði hinn 21 árs gamli Noel Redding og tók í bassann. Noel hafði árið áður stofnað hljómsveitina „The Loving Kind“ með litlum sýnilegum árangri opinberlega og svo voru félagar hans að auki latir til verka. Noel hætti þegar hann sá auglýsinguna um tríóið sem verið væri að koma á fót og eftir áheyrnarprufuna sáu menn efnið í Noel og réðu hann til starfsins. Það reyndist heillaspor því Noel Redding varð ekki bara sterk kjölfesta í bandinu heldur líka þéttur bassaleikari sem notaði bassann oft eins og gítar sem gerði hinn magnaða gítarleik Hendrix enn magnaðri.

Hinn 19 ára gamli Mitch Mitchell var líka listlærður eins og Noel auk þess að vera góður trommari. Fyrsta hljómsveitin sem hann lék með var The Coronets sem var stuðningssveit leikarans Chris Sandford. Þeir náðu svo langt að koma laginu “Not Too Little, Not Too Much”

Chris Sandford – Not Too Little, Not Too Much – https://www.youtube.com/watch?v=rmhqjTbAYOM

Inn á vinsældarlista en gátu ekki fylgt laginu eftir því Christ hafði engan tíma fyrir hljómsveitina, hann var jú alltaf að leika. Þá hoppaði Mitch af lestinni og tók við kjuðunum hjá Georgie Fame’s Blue Flames og sú staða entist fram í október 1966. Svo gerast stundum hlutir sem maður skilur ekki, hlutir sem virðast fyrirfram ákveðnir án þess að vera það. Í nóvember sama ár hittast þeir fyrir tilviljun, Mitch Mitchell og Chas Chandler, sá fundur leiðir af sér munstrun í tríó Jimi Hendrix. Hinn ungi kraftmikli trommuleikari er ekki bara þjálfaður og góður sem slíkur heldur er hann líka hugmyndaríkur, skemmtilegur og gefandi karakter sem leikur stórt hlutverk í hljóðsköpun hljómsveitar Jimi Hendrix.

Í hnotskurn mætti nota þessi orð Jimi Hendrix sem mottó fyrir tríóið:

“I came to Engiand, picked out the two best musicians, the best equipment, and all we are trying to do now is create, create, create, music, our own personal sound,our own personal being…“

Mynd KFK: Endurreisnar menn

Mynd KFK: Endurreisnar menn

Fágað tríó

Allir þrír meðlimir The Jimi Hendrix Exsperienced voru listrænt þenkjandi, hugmyndaríkir, fyndnir og fágaðir í sínum ærslum, rokki og blús. Á einu ári breyttu þeir heimsmynd í sýn á nýjan heim. Í fasi, tilburðum og tilsvörum voru þeir eins og aðalsmenn á miðöldum, kurteisir, til hlés en á sama tíma gefandi. Í tónlistinni villtir og frumlegir framúrstenumenn sem fundu engin takmörk, bara strauma sköpunar og gleði renna um sig. Hin nýja endurreisn var mætt.

Foxy Lady

[Intro] Foxy
Foxy [Verse 1] You know you’re a cute little heartbreaker
Foxy
You know you’re a sweet little lovemaker
Foxy [Chorus] I want to take you home
I won’t do you no harm, no
You’ve got to be all mine, all mine
Ooh, foxy lady [Verse 2] I see you, heh, on down on the scene
Foxy
You make me want to get up and scream
Foxy
Ah, baby listen now
I’ve made up my mind [Chorus][x2] [Outro] Here I come
I’m coming to get you
Foxy lady
You look so good
Yeah, foxy
Yeah, give us some
Foxy
Yeah, get it, babe
You make me feel like
Feel like saying
Foxy
Foxy
Foxy lady
Foxy lady

.

The Jimi Hendrix Experience – Foxey Lady (Miami Pop 1968) – https://www.youtube.com/watch?v=_PVjcIO4MT4

Mynd KFK: Framhlið reynslunnar

Mynd KFK: Framhlið reynslunnar

A hlið
Þegar platan kom út 12. maí 1967 var Jimi hendrix 24 ára gamall, Noel Redding var tuttugu og eins og Mitch Mitchel tvítugur. Á einu ári tókst þessum ókunnu mönnum innbyrgðis að sameina krafta sína og semja ellefu lög og texta fyrir stóra LP plötu ásamt útsetningum á lögunum. Forsprakkinn Jimi Hendrix er reyndar skrifaður einn fyrir öllum lögunum en mig grunar að Noel og Mitch hafi lagt orð í belg.

01 – Foxy Lady – 3:22
02 – Manic Depression – 3:46
03 – Red House – 3:44
04 – Can You See Me – 2:35
05 – Love or Confusion – 3:17
06 – I Don’t Live Today – 3:58

Platan er tekin upp á tímabilinu 23. október 1966 til 4. apríl 1967 í þrem hljóðverum í London; De Lane Lea, CBS og Olympic Studios. Upptökum stjórnaði Chas Chandler.

Chas Chandler segir frá kynnunum – https://www.youtube.com/watch?v=dlxw8u5bCEk

Mynd KFK: Baksvipur

Mynd KFK: Baksvipur

B – hlið

07 – May This Be Love – 3:14
08 – Fire – 2:47
09 – Third Stone from the Sun – 6:50
10 – Remember – 2:53
11 – Are You Experienced? – 4:17

Hljómsveitin:
Jimi Hendrix – Söngur og gítarar
Noel Redding – Bassi og bakrödd í lögunum“Foxy Lady,“ og „Fire,“
Mitch Mitchell – Trommur og bakrödd í lögunum „I Don’t Live Today“ og „Stone Free“

Aðstoð:
Chas Chandler – Stjórnaði upptökum
Dave Siddle – var á upptökuborði í lögunum; „Manic Depression,“ „Can You See Me,“ „Love or Confusion,“ „I Don’t Live Today,“ „Fire,“ „Remember,“ og“ „Stone Free“
Eddie Kramer – sat við upptökuborðið í lögunum; „The Wind Cries Mary,“ „Are You Experienced?,“ og „Red House“. Eddie var einnig viðriðinn upptökurnar á lögunum; „Love or Confusion,“ „Fire“ og „Third Stone from the Sun“
Mike Ross – á upptökuborði í lögunum; „Foxy Lady,“ „Red House,“ og „Third Stone from the Sun“

Í desember sama ár kom svo önnur plata þeirra út; Axis: Bold as Love sem af mörgum er talin besta plata Jimi Hendrix.

Masterpiece Reviews: The Jimi Hendrix Experience – Axis: Bold As Love – https://www.youtube.com/watch?v=MNzeN_z8aT0

Mynd KFK : Ekki er ég af þessum heimi

Mynd KFK : Ekki er ég af þessum heimi

Maðurinn að baki Hendrix

Hver var þessi dularfulli maður sem kom líkt og fullskapaður guð inn í tilveru jarðarbúa og færði þeim eld framfara gegnum tónlist?
Er hægt að átta sig á þessum snillingi sem kom inn í lífið hlaðinn tónlist líkt og Mozart forðum daga en hvarf svo jafn skyndilega úr því aftur aðeins 27 ára gamall þegar hann lést árið 1970?
Segja textarnir á plötunni „Are You Experienced“ okkur eitthvað um manninn Jimi Hendrix. Fljótt á litið virðast þeir fjalla um ástina og erfiðleikana sem ástinni fylgir.

I’m coming to get you
Foxy lady
You look so good
Yeah, foxy
Yeah, give us some
Foxy
Yeah, get it, babe
You make me feel like
Feel like saying
Foxy
Foxy
Foxy lady
Foxy lady

Textinn við Foxy Lady gefur til kynna að draumurinn um hina fullkomnu konu sé í raun tálsýn ein og jafnvel guði eins og Hendrix lánaðist ekki að finna þann draum í vöku.

Þunglyndi á sér orsakir, ekki bara vegna neyslu óæskilegra lyfja, heldur líka vegna erfiðleika í sjálfstjáningu og nálgun við aðra. Áföll í æsku setja líka sitt mark á sálina sem erfitt er að milda þegar nærveru og ástar er þörf.

Manic depression is touching my soul
I know what I want but I just don’t know
How to, go about getting it
Feeling, sweet feeling
Drops from my fingers, fingers
Manic depression is catching my soul

Þriðja lagið „Red House“ þykir mér eitt flottasta blús lag sem samið hefur verið og túlkun Hendrix á því einstök. Þar er það aftur ástin sem er í fyrirrúmi og eitt er að langa, annað að fá.

[Verse 1] There’s a red house over yonder
That’s where my baby stays
Lord, there’s a red house over yonder
Lord, that’s where my baby stays
I ain’t been home to see my baby
In ninety nine and one half days [Verse 2] Wait a minute, something’s wrong here
The key won’t unlock this door
Wait a minute, something’s wrong
Lord have mercy, this key won’t unlock this door
Somethings goin’ on here
I have a bad, bad feeling
That my baby don’t live here no more
(That’s alright I still got my guitar, look out now!)

.

Best QualityHDJimi Hendrix Red House Live at Stockholm – https://www.youtube.com/watch?v=29UAK_o3Fz4

Mynd KFK: Í annari vídd

Mynd KFK: Í annari vídd

Arfleið

Það eru ekki bara frábærar plötur sem Jimi Hendrix færði okkur, plötur eins og; Are You Experienced 1967, Axis: Bold as Love 1967, Electric Ladyland 1968, Band of Gypsys 1970, Rainbow Bridge (úr kvikmynd) 1971 og The Cry of Love 1971. Hann færði okkur ný viðmið með tónlist sinni, nýja hugsun, nýja sýn og aðferir við að tjá sig í tónum og koma þeirri hugsun til skila í upptökum. Þessi sérstaða kom strax fram á fyrstu plötunni. Eddie Kramer upptökumaður sagði um Hendrix þegar upptökur á „Are you Experienced“ fóru fram;

“Ideas came fast and furious with a devilish glint in his eye as he would rack up a particular sound from his amp that would give me a challenge to interpret what was going on from the floor of the studio to bringing that enormous sound into the control room.”

Þetta var hið margfræga; „Sumar ástarinnar“ þegar heimurinn tók stökk í vitundarvakningu og presturinn séra Timothy Leary kom með sinn boðskap um andlega örvun; „Turn on, tune in, drop out“

Hin þriggja daga útihátíð í Montery þá um sumarið breytti í raun öllu. Hendrix og félagar stigu á svið á þriðja degi tónleikanna, þann 18. Júní og strax við fyrstu tónana tók fólk andköf, þvílíkt og annað eins hafði það aldrei heyrt, fagnaðarbylgja skall á sviðinu þegar lagið Fire og Hey Joe fylltu vit þess, Hendrix hækkaði kerfið í botn.

Jimi Hendrix Experience-Fire and Hey Joe – https://www.youtube.com/watch?v=Ql3NQMET7v4

[Intro] Alright
Now dig this, baby [Verse 1] You don’t care for me
I don’t care about that
You got a new fool, ha!
I like it like that [Pre-Chorus] I have only one burning desire
Let me stand next to your fire [Chorus] Let me stand next to your fire
Let me stand next to your fire
Let me stand next to your fire
Let me stand next to your fire

Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283