Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Lýst er eftir … #höfumhátt

$
0
0

Guðmundur S. Brynjólfsson skrifar:

Screen Shot 2017-08-07 at 20.15.42

 

 

 

 

Lýst er eftir valinkunnum mönnum. Það er óvíst með útlit. Óvíst með aldur og fyrri störf – og hjúskaparstöðu. Innræti athyglisvert. Óvissa um búsetu. Vitað að hugmyndir þeirra um samfélag eru með sérkennilegum hætti. Þeir sáust hvergi síðast – en voru líklega í jakkafötum. Lýst er eftir valinkunnum mönnum sem í göfugmennsku sinni eru í felum. Þeir hafa í það minnsta ekki hátt. Lýst er eftir mönnum sem sterk óvissa ríkir um að hafi verið til; séu til. Það er lýst eftir þessum valinkunnu mönnum hvarvetna – nema á vef Stjórnarráðsins.

Hafir þú einhverjar upplýsingar um þessa valinkunnu menn ert þú vinsamlegast beðin(n) að snúa þér til …
Ja, bara hvert sem er, nema ekki til ríkisstjórnarinnar og ekki til ráðuneytisstjóra – þá er þínar upplýsingar betur komnar hjá hundinum þínum eða fárveikum hamstri.

Lýst er eftir valinkunnum mönnum …
Lýst er eftir heiðarleika …
Lýst er eftir sannleika …
Lýst er eftir samfélagi …
Lýst er eftir samlíðun, ást og réttlæti.
Lýst er eftir þjóðfélagi sem ekki syngur – í takt við ráðamenn – „Bí bí og blaka“ yfir öllum sínum viðbjóði og misgjörðum!

#höfumhátt


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283