Stundin og The Guardian uppljóstruðu í dag, í samstarfi við Jóhannes Kr. Kristjánsson, um þá fjármuni sem Bjarni Benediktsson forsætisráðherra náði að forða úr fjárfestingarsjóði Glitnis, svonefndum Sjóði 9, á síðustu dögum fyrir bankahrunið 2008, og að morgni þess dags sem neyðarlögin voru sett.
Bjarni var á þeim tíma þingmaður en átti einnig í beinum samskiptum við Einar Örn Ólafsson sem var yfirmaður fjárfestingadeildar fjárfestingarbankasviðs Glitnis. Aðeins ári fyrr hafði Einar Örn raunar séð um fjárreiður prófkjörsherferðar Bjarna, fyrir Alþingiskosningar.
Í umfjölluninni er vísað til viðtals sem Heimir Már Pétursson tók við Bjarna Benediktsson þann 10. desember 2016. Í viðtalinu segist Bjarni ekki hafa átt í neinum „viðskiptalegum tengslum“ sem snert gætu úttekt föður hans úr Sjóði 9 á sama tíma. Þegar Heimir nefnir að ekki hafi allir fengið að færa fé úr sjóðnum síðustu daga fyrir hrun svarar Bjarni: „Það er bara alrangt hjá þér, Heimir. Það er alrangt hjá þér. Nei nei, það er alrangt hjá þér.“ Og þegar forsætisráðherrann er spurður hvort hann hafi sjálfur átt fé í sjóðnum svarar hann: „Ég man ekki eftir því að það hafi verið eitthvað sem mig rekur minni til að hafi skipt máli“.
Lára Hanna Einarsdóttir endurbirti snarlega þennan hluta viðtalsins, sem sjá má efst í þessari frétt. Útskrift samtalsins má lesa hér á eftir:
„Ég hef ekki séð neitt sem segir að það hafi eitthvað óeðlilegt átt sér stað“
H: „Það var í Fréttablaðinu í gær greint frá stöðu Sjóðs 9 og hugsanlegri rannsókn sem hefði átt að fara af stað þar en hætt var við. Snerti föður þinn sem hafði tekið þarna út úr Sjóði 9 rétt fyrir bankahrun, nokkrum dögum fyrr. Er þetta ekki óþægilegt fyrir þig pólitískt —þú varst á sínum tíma líka í nánum viðskiptatengslum við föður þinn— að þetta skuli vera svona, að þarna hafi verið teknir út þessir fjármunir rétt fyrir hrun?“
BB: „Ég veit ekki af hverju það ætti að vera. Ég hef ekki séð neitt sem segir að það hafi eitthvað óeðlilegt átt sér stað. Sjóður 9 var opinn. Það var hægt að taka út úr honum. Á þessum tíma mátti millifæra milli landa ef menn kusu að gera það. Ég var ekki í nokkrum viðskiptalegum tengslum, eins og þú segir, á þessum tímapunkti sem tengjast þessari úttekt eða þessari millifærslu. Og hef bara í raun og veru engar upplýsingar um þetta aðrar en þær sem ég hef …“
H: „Það virðist vera að ekki allir hafi samt fengið á þessum síðustu dögum að taka út …“
BB: „Það er bara alrangt hjá þér Heimir. Það er alrangt hjá þér.“
H „Ég vísa bara til frétta sem hafa verið sagðar af þessu …“
BB: „Nei nei, það er alrangt hjá þér. Sjóður 9 var —örugglega— opinn öllum, þar til hann var lokaður öllum. Og ef ég man rétt, þá lokaði hann í tæpan mánuð og var síðan opnaður aftur. En þá höfðu réttindin vissulega skerst.“
H: „Þú sjálfur, persónulega. Tókst þú eitthvað út á þessum síðustu dögum? Áttirðu eitthvað í þessum sjóði?“
BB: „Ekkert sem skipti máli. Ég átti á sínum tíma eitthvað í Sjóði 9. En ég man ekki eftir því að það hafi verið eitthvað sem mig rekur minni til að hafi skipt máli.“




