„Sjálfstæðismenn hafa bara ekki viljað tala við Dag B. Eggertsson, borgarstjóra Samfylkingarinnar. Þess vegna hefur ekki verið ráðist í nauðsynlega uppbyggingu á íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Þess vegna hefur ekki verið hægt að úthluta þessum lóðum til borgarinnar.“ – Þetta sagði Jóna Sólveig Elínardóttir, varaformaður Viðreisnar, í viðtali við Kosningaspjall Vísis á miðvikudag.
Í kjölfarið hafa nú Píratar sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir fordæma að „andúð Sjálfstæðismanna á sitjandi borgarstjórn skuli leiða til þess að fjöldi borgarbúa fær ekki þak yfir höfuðið“. Ennfremur segir í yfirlýsingunni:
Að húsnæði fyrir Reykvíkinga og alla sem þar vilja búa, tefjist af því að Sjálfstæðismönnum líkar illa við borgarstjórann og eru hræddir við að honum gangi of vel er ekki bara óeðlilegt og sjúklegt – heldur er það sviksamlegt athæfi við fólk sem vantar húsnæði og vanvirðing við alla landsmenn.
Undir yfirlýsinguna rita Halldór Auðar Svansson, Þórgnýr Thoroddsen, Þórlaug Borg Ágústsdóttir, Arnaldur Sigurðarson, Kristín Elfa Guðnadóttir, Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, Svafar Helgason, Bergþór Heimir Þórðarson Njarðvík og Björn Birgir Þorláksson.





