Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Kosningasamtal á Betra Íslandi

$
0
0

Fréttatilkynning:

Nú hafa Vinstri græn, Sjálfstæðisflokkur, Samfylking, Píratar, Framsókn og Björt framtíð öll sett inn stefnur á Kosningasamtalið á Betra Íslandi. Vefurinn hefur verið heimsóttur 20.000 sinnum af um 16.000 kjósendum, stefnur og hugmyndir hafa verið skoðaðar yfir 65.000 sinnum. Um 220 hugmyndir og stefnur hafa verið settar fram af framboðum, kjósendum og félagasamtökum ásamt um 800 röksemdafærslum með og á móti.

Markmið þessa verkefnis er að tengja saman kjósendur og frambjóðendur og auka traust almennings á stjórnmálum og stjórnmálamönnum. Einnig er þetta viðleitni til að efla upplýsta og málefnalega umræðu, þar sem hægt er að nálgast stefnur allra flokka á einum stað og bera þær saman.

Þetta er í fyrsta sinn sem viðlíka samráðsverkefni hefur verið framkvæmt í heiminum í aðdraganda kosninga en viðtökur framboðanna hafa farið fram úr okkar vonum. Það er alls ekki sjálfsagt eða auðvelt að ná svona mörgum framboðum saman í eitt verkefni, en okkur tókst að fá mjög breiða þátttöku og það þrátt fyrir að tíminn hafi verið mjög naumur til að koma þessu saman. Félagasamtök, eins og Grái herinn, Gagnsæi, Stjórnarskrárfélagið og Öryrkjabandalag Íslands hafa líka tekið þátt í að koma málum á dagskrá.

BetraIslandKosningaSamtal1

Við erum enn að þrýsta á öll önnur framboð og höfum fengið þau svör frá Miðflokknum og Viðreisn að búast megi við þátttöku þeirra fljótlega, jafnvel í kvöld. Það bætist við  þátttöku framboða sem yfir 70% af kjósendum segjast ætla að kjósa í skoðanakönnunum.

Lýðræðisframfarir gerast hægt, en hvert skref er mikilvægt. Þetta verkefni er að langmestu leyti unnið í sjálfboðavinnu og því skiptir umfjöllun fjölmiðla gríðarlegu máli til að vekja athygli almennings á Kosningasamtalinu.

Erindið sem þetta á til almennings er ótvírætt en lykilatriði er að almenningur sé meðvitaður um það. Lítið hefur verið fjallað um verkefnið. Við vonum að þið sjáið ykkur fært að fjalla um Kosningasamtalið og þá hugmyndavinnu og rökræður á milli almennings og stjórnmálamanna sem þar fer fram.


Slóð á vef: https://kosningar-2017.betraisland.is/


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images