Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Landsbankinn verði þjóðnýttur: Miðflokkurinn kynnir „nýja fjármálakerfið“

$
0
0

Hinn nýstofnaði Miðflokkur Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar kynnti um helgina stefnu um meðferð bankanna sem ríkið tók yfir í efnahagshruninu 2008, Íslandsbanka, Landsbankans og Arion-banka. Flokkurinn hyggst, samkvæmt skjalinu Endurskipulagning fjármálakerfisins (í stuttu máli) afturkalla sölu Arion-banka, afhenda þriðjung hlutabréfa hans almenningi, selja þriðjung í hlutafjárútboði en halda þriðjungi í ríkiseigu; taka tugi, jafnvel hundruð, milljarða króna úr bönkum landsins til ríkisins og nýta í „mikilvægar fjárfestingar eins og heilbrigðisþjónustu og samgöngubætur“; tryggja að Landsbankinn verði í ríkiseigu og þjóni samfélagslegum markmiðum; stofna nýjan netbanka, lágvaxta-viðskiptabanka, sem dótturfélag Landsbankans; en selja Íslandsbanka til erlends viðskiptabanka, og fá þannig „erlenda samkeppni inn á íslenskan bankamarkað“.

Flokkurinn kynnir áformin sem „framhald aðgerða sem ráðist var í á árunum 2013–2016“, það er í forsætisráðherratíð Sigmundar Davíðs.

Fyrsti liður í kynningarskjalinu er bann við verðtryggingu. Þá segist flokkurinn, ásamt endurskipulagningu bankanna, munu beita sér fyrir því að fjárfesting íslensku lífeyrissjóðanna verði að langmestu leyti erlendis. 80% fjárfestinga þeirra nú sé innanlands og 20% utanlands, en það hlutfall ætti að vera öfugt, og muni „auka stöðugleika íslensks efnahagslífs“.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images