Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Sunday, Joy og Mary fá loks dvalarleyfi

$
0
0

Sunday Iserien, Joy Lucky og dóttir þeirra Mary hafa loksins fengið dvalarleyfi á Íslandi. Þessum tíðindum deildi Sema Erla Serdar á Facebook, stofnandi baráttusamtakanna Solaris, undir hádegi í dag, mánudag. Samkvæmt upplýsingum frá lögfræðingi fjölskyldunnar, Halldóri Kristjáni Þorsteinssyni, er dvalarleyfið veitt á grundvelli mannúðarsjónarmiða, skv. 74. grein Laga um útlendinga. Lögfræðingurinn segir jákvæða niðurstöðu í málinu vera mannréttindabaráttu meðal almennings að þakka.

Saga fjölskyldunnar

Sunday Iserien og Joy Lucky eru frá Nígeríu. Iserien flúði þaðan vegna ógnar hryðjuverkasamtakanna Boko Haram og átaka trúarhópa. Faðir hans var myrtur í slíkum átökum árið 2006. Starfaði Isarien eftir það sem bílstjóri stjórnmálamanns, formanns hins nýstofnaða íhaldsflokks ACN. Árið 2007 var formaðurinn myrtur, og lagði Isarien á flótta af ótta við að hljóta sömu örlög. Stuttu eftir flóttann myrtu liðsmenn Boko Haram föðurbróður hans og son föðurbróðurins. Þetta kemur fram í umfjöllun Stundarinnar frá því í sumar.

Joy Lucky var aftur á móti hneppt í ánauð og seld mansali til Napólí á Ítalíu, þar sem hún var neydd í vændi. Þaðan flúðu þau Iserien saman. Þau eiga ekki afturkvæmt til Nígeríu.

Dóttir þeirra, Mary, er fædd á Ítalíu og hefur til þessa lifað á flótta, án fullvissu um dvalarleyfi eða framtíð í nokkru landi. Árið 2016 komst fjölskyldan til Íslands. Á Íslandi hóf Mary, sem nú er átta ára, skólagöngu í fyrsta sinn.

Móttökur á Íslandi

Joy, Mary og Sunday

Joy, Mary og Sunday – skilaboð mótmælenda á change.org.

Fyrr á árinu mótmæltu þúsundir manna fyrirliggjandi brottvísun fjölskyldunnar af landinu, sem var fyrst ákveðin af Útlendingastofnun, síðan staðfest af Kærunefnd útlendingamála, og ekki snúið við fyrr en með inngripi Alþingis og lagabreytingu á hinu örstutta 147. löggjafarþingi nú í haust.

Annað mál sem vakti mikla athygli og sterka mótspyrnu á sama tíma var mál feðginanna Abrahim og Haniye Maleki frá Sýrlandi. Brottvísun þeirra var frestað að kröfu Ríkislögreglustjóra, á meðan Kærunefnd útlendingamála metur ákvörðun Útlendingastofnunar. Umsókn þeirra um vernd er enn í meðferð yfirvalda, og bíða þau því enn endanlegrar niðurstöðu.


Ljósmynd: Change.org


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images