Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Heimspekispjall í kvöld: Landamæri málfrelsisins, popúlismi og pólarísering

$
0
0

Róbert Haraldsson heldur erindið „Málfrelsisskerðing og gerræðisvandinn: Popúlismi og pólarísering“ í Hannesarholti, Grundarstíg 10, í kvöld, þriðjudaginn 24. október kl. 20, í fyrsta heimspekispjalli vetrarins.

Segir í fréttatilkynningu Hannesarholts að Róbert muni „ræða nýjar áskoranir sem steðja að málfrelsi. Að erindi Róberts loknu mun panell sérfræðinga ræða hvernig umræða um flóttamenn og hælisleitendur, stöðu aldraðra, öryrkja og fátækra hefur hvort tveggja í senn fengið aukið rými í almennri umræðu og einkennst af nálgunum sem vekja óhug hjá sumum.“

Hannesarholt er sjálfseignarstofnun með það markmið, samkvæmt vefsíðu félagsins, að „efla jákvæða, gagnrýna hugsun í íslensku samfélagi, auka skilning á gildi sögunnar fyrir samtímann og framtíðina og hvetja til uppbyggilegrar umræðu og samveru“.

Heimspekispjallið heldur Hannesarholt í samstarfi við Félag áhugamanna um heimspeki.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images