
Mótun og framfylgd byggðastefnu sem í senn miðar að því að tryggja íbúum landsbyggðanna réttmæta hlutdeild í velferðarþjónustu samfélagsins og stuðla að traustri búsetu er meðal mikilvægustu viðfangsefna stjórnmálanna. Vinstri græn vilja stuðla að byggð um allt land á forsendum sjálfbærni og virðingar fyrir fólki og umhverfi.
Íbúum í dreifbýli hefur fækkað á undanförnum áratugum og þéttbýlisbúum fjölgað. En staðreyndin er að Ísland er strjálbýlt land og langar vegalengdir milli byggðra bóla og opinber stefna þarf að miðast við það í öllu tilliti.
Hvað viljum við og hvað gerum við?
Vinstri græn vilja stuðla að góðu gengi landsbyggðanna. Við viljum einfaldlega að landið haldist í byggð. Við viljum nýta mannauð landsbyggðanna og þá þekkingu sem landsbyggðarfólk býr yfir til heilla fyrir íslenskt samfélag og við viljum nýta náttúruauðlindirnar á sjálfbæran hátt þannig að umhverfinu sé hlíft og bæði einstaklingar og samfélag hljóti sanngjarnan skerf.
Það bíður okkar að hrinda í framkvæmd byggðastefnu sem tekur mið af öllu þessu. Stefnumörkun í samgöngumálum, ekki síst hvað almenningssamgöngur snertir, þarf að miðast við hversu byggð er dreifð og einnig skipulag heilbrigðis- og menntamála. Byggðastefna okkar nær til alls landsins, einnig þéttbýlisins við Faxaflóa. Ekkert byggðarlag er öðru æðra. Við byggjum landið saman og höfum þörf fyrir hvert annað í efnahagslegu og félagslegu tilliti.
Við erum konur, karlar, börn, ungmenni, innfæddir Íslendingar og aðflutt. Sum hinna aðfluttu dvelja hér langan aldur og gera landið og samfélagið að sínum heimahögum en aðrir staldra skemur við. Okkur ber að gæta þess í byggðastefnu að allir fái tækifæri til að láta til sín taka og gott af sér leiða án tillits til kyns eða uppruna.
Grettistak þarf í húsnæðismálum
Byggðastefna er ávallt mikilvægur farvegur stjórnmálanna til að færa fram þau mál sem eru brýn fyrir þróun og framvindu samfélagsins í heild og einstakra byggða. Nú brenna húsnæðismál víða á landsbyggðarfólki, líkt og í höfuðborginni. Of lítið er um nýbyggingar úti um land og húsnæðisskortur hamlar sums staðar eðlilegum vexti. Viðbrögð við þessu hljóta að vera á verkefni stjórnmálanna og ljóst er að ekki ræður markaðskerfið við ástandið. Við Vinstri græn bendum á félagsleg úrræði svo sem byggingu leiguhúsnæðis sem fjármagnað er með atbeina hins opinbera sem lausn á vandanum og þar gegnir Íbúðalánasjóður mikilvægu hlutverki.
Ef þú vilt raunverulega breytingu á stjórnarháttum þá kýstu Vinstri græn – gerum betur.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, alþingismaður.





