Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Nýbyggingar fjármagnaðar með kannabisræktun

$
0
0

Samkvæmt nýbirtri skýrslu Greiningardeildar Ríkislögreglustjóra um skipulagða glæpastarfsemi á Íslandi hefur kannabismarkaður landsins verið „sjálfbær í tæpan áratug“, í þeirri merkingu að ekki sé þörf á innflutningi, eftirspurn í landinu sé fyllilega mætt með innlendri framleiðslu, og virðist það hafa verið tilfellið frá efnahagshruninu 2008. „Ræktun á kannabisefnum hefur augljóslega stóraukist og framboð er stöðugt og mikið,“ segir í skýrslunni, auk þess sem fullyrt er „að fíkniefnaneysla hafi aldrei verið meiri í Íslandssögunni.“

„Augljóslega er fjölgun ferðamanna þáttur í því hversu hratt fíkniefnamarkaðurinn hefur stækkað hér á landi; ferðamenn neyta fíkniefna rétt eins og heimamenn.“

Í skýrslunni koma fram nokkrar upplýsingar um hvernig kannabisræktun á Íslandi er háttað: „þeir umsvifamestu standa samtímis að nokkrum ræktunum í stað þess að binda alla framleiðsluna við eina stóra „verksmiðju“.“ Algengt sé að „einum geranda sé falið að „leppa“ leigu á húsnæði eða taka á sig sök ef upp kemst um ræktunina.“ Oftast verði þá fyrir valinu „einhver sem ekki hefur áður komist í kast við lögin.“

Segir í skýrslunni að stórfelld og skipulögð ræktun á kannabis skapi „mikinn hagnað með lítilli fyrirhöfn og lítilli áhættu m.a. sökum vægra refsinga“. Reynsla lögreglunnar sé sú að þeir sem standi að ræktuninni séu einkum Íslendingar, þá oft ungir karlmenn „sem fá skjótfenginn gróða af ræktun og sölu.“ Þess þekkist dæmi „að ræktanir séu liður í fjármögnun húsbygginga og fari fram í húsnæðinu þegar það er fokhelt.“

Þá ítrekar Greiningardeildin að „dreifbýli kunni að henta afbrotahópum vel við ræktun kannabis og framleiðslu fíkniefna.“

Þá lýsir embættið þeirri afstöðu í skýrslunni að „lögleiðing fíkniefna sé óforsvaranleg“ — það sé ríkjandi skoðun innan lögreglunnar og meðal stjórnenda hennar.

Um skýrslu Greiningardeildar

„Afbrotatölfræði lögreglu gefur ein og sér ekki nægilega glögga mynd af þeim brotaflokkum sem tengjast iðulega skipulagðri glæpastarfsemi, s.s. fíkniefnabrotum, mansali og vændi.“ Á þessum orðum hefst skýrsla Greiningardeildar Ríkislögreglustjóra um skipulagða glæpastarfsemi á Íslandi, sem birtist þriðjudaginn 24. október 2017, og gefur tóninn fyrir það sem vænta má: í skýrslunni er flest nokkrum vafa háð, mikið um almennar grunsemdir og hugleiðingar, sem sagt er stafa af fjárskorti og manneklu í lögreglunni. Meðal þeirra tiltölulega fáu atriða sem ekki eru háð slíkum vafa eru oftantaldar upplýsingar um fíkniefnamarkaðinn á Íslandi.

Um Greiningardeildina

Greiningardeild Ríkislögreglustjóra tók til starfa 1. janúar 2007. Samkvæmt reglugerð er hlutverk hennar að rannsaka „landráð og brot gegn stjórnskipan ríkisins og æðstu stjórnvöldum þess“ auk þess að leggja „mat á hættu á hryðjuverkum og skipulagðri glæpastarfsemi“. Sérstaða Greiningardeildarinnar felst í upplýsingaöflun sem beinist ekki að þegar orðnum eða meintum brotum heldur er, samkvæmt reglugerðinni, ætlað „að koma í veg fyrir eða draga úr líkum á afbrotum“ áður en þau eiga sér stað.

Þá segir á vefsíðu lögreglunnar að deildin sinni einnig verkefnum sem ekki er gert ráð fyrir í reglugerð, t.d. þeim „sem áður féllu undir Varnarmálastofnun“. Þau verkefni lúta einkum, segir þar „að forsvari á sviði borgaralegra öryggismála (e. National Security Authority), öryggisvottunum vegna einstaklinga og bygginga/aðstöðu, vöktun og skýrslugerð varðandi erlenda atburði, einkum ófrið og samfélagslega upplausn, sem haft geta áhrif á Ísland og íslenska hagsmuni í víðtækum skilningi“


Ljósmynd fengin af vef Lögreglunnar.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images