Á miðvikudagsmorgun bættist Þórhallur Heimisson í hóp þeirra presta sem lýsa sig mótfallna afstöðu biskups til upplýsingaleka um meðferð fjármuna og valds. Agnes M. Sigurðardóttir, biskup þjóðkirkjunnar, sagði í viðtali sem Morgunblaðið birti á mánudag, að hún teldi ekki „siðferðilega rétt að stela gögnum og fara á bak við fólk til að afhjúpa mál og leiða sannleikann í ljós.“
Í bloggfærslunni „Lógbrjóturinn Kristur“ leggur Þórhallur Heimisson út af 9. kafla Jóhannesarguðspjalls, þar sem segir af því er Jesús læknaði blindan mann svo hann gat séð: „Maðurinn lendir síðan í orðaskaki við Farísea sem trúa því fyrst ekki að hann hafi verið blindur og segja síðan, þegar blindan hefur verið staðfest, að þessi maður sem læknaði hann sé nú ekkert annað en aumur syndari af því að hann hafi læknað á hvíldardegi.“
„Þeir sáu aðeins lögbrotið“
Þórhallur segir að ólíkt manninum sem áður var líkamlega blindur og fékk sjón hafi farísearnir verið andlega blindir: „Þeir sáu ekki kraftaverkið og þar með sannleikann í orðum Jesú og boðskapinn um kærleikann fyrst. Þeir sáu aðeins lögbrotið. Þá skipti meiru að halda lögin um hvíldardaginn en að lækna sjúka. Þeir eru sem sagt andlega blindir. Og blindu þeirra gat Jesús ekki læknað.“
Þórhallur segir að Jesús hafi ekki aðeins verið „góður sögumaður og gjörningameistari. Hann var líka byltingarmaður. Og lögbrjótur.“ Markviss lögbrot hafi reyndar verið, að skilja má, höfuðatriði í starfi hans.
Og hver var Sannleikurinn að mati Jesú? Að vellíðan, sálarheill og heill einstaklingsins væri meira virði en lögin. Iðulega braut hann gegn lögum þess samfélags sem hann ólst upp við, ef það mætti verða til að leysa úr vanda samferðamanna sinna og opna augu hinna andlega blindu. Hann braut hvíldardaglögin og hreinsunarlögin (hvað mátti borða og hvað ekki), rak bankamenn úr musterinu, borðaði með þeim sem voru taldir syndarar og óhreinir, varði gleðikonur og aðra sem samfélagið fordæmdi og hafnaði prestunum við musterið í Jerúsalem.
Rósamálsátökin
Rétt eins og biskup minntist ekki berum orðum á lekann á gögnum Glitnis í viðtalinu við Morgunblaðið, minnist Þórhallur hvorki berum orðum á biskup né ummæli hennar í bloggfæ. Í ljósi undanfarandi umræðu virðist þó ljóst hvaða samhengi færslunni er ætlað. Má segja að Þórhallur skjóti nokkuð föstum skotum að biskupi, með því að líkja afstöðu hennar til hugsanlegra lögbrota þeirra sem ljóstra upp um spillingarmál við afstöðu farísea í frásögnum Nýja testamentisins. Farísear voru kennimenn og valdsmenn sem birtast ítrekað í guðspjöllunum sem helstu andstæðingar Jesú. Farísei hefur í krafti þeirri frásagna orðið samheiti við hræsnara í kristnum samfélögum.
Áður höfðu Hildur Eir Bolladóttir og Davíð Þór Jónsson lýst sig ósammála biskupi í málinu.
Ljósmynd fengin af Flickr-síðu Þjóðkirkjunnar.



