Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Iðnnemar hurfu úr Útlendingalögum, nú sparkað úr landi – Ráðgáta segir talsmaður ráðherra

$
0
0

Með þeim nýju Lögum um útlendinga sem tóku gildi 1. janúar á þessu ári féllu niður ákvæði um dvalarleyfi fyrir erlenda iðnnema sem áður nutu sambærilegs réttar til dvalar á landinu og erlendir háskólanemar. Ekki er að sjá að þetta hafi komið fram í umræðum um frumvarpið á þingi, í rökstuðningi og athugasemdum nefndarinnar að baki lögunum, eða í þeim umsögnum sem þingið leitaði eftir á meðan frumvarpið var til umræðu, til dæmis frá Samtökum iðnaðarins.

Óttarr Proppé.

Óttarr Proppé, nú heilbrigðisráðherra, leiddi þingnefndarstarfið að baki nýju lögunum. Samkvæmt aðstoðarmanni hans kemur málið honum í opna skjöldu.

Óttarr Proppé, nú heilbrigðisráðherra, leiddi þingnefndarstarfið að baki nýju lögunum. Ekki náðist á Óttarr sjálfan við vinnslu þessarar fréttar, að morgni dags tveimur dögum fyrir kosningar. Aðstoðarmaður hans í ráðuneytinu, Unnsteinn Jóhannsson, sagði þó ljóst að hér væri bagaleg yfirsjón á ferð – hugmyndin að baki nýju lögunum hefði verið að styrkja stoðir við að fólk gæti komið hér, stundað nám, vinnu og annað, og alls ekki hefði staðið til að útiloka fleiri en áður. Málið væri sérstakt og alvarlegt. Virðist því hér vera um handvömm og yfirsjón löggjafans að ræða frekar en meðvitaða stefnubreytingu.

Iðnnemar hurfu úr lögunum

Það kom Chuong Le Bui, matreiðslunema frá Víetnam, í opna skjöldu þegar hún fékk bréf frá Útlendingastofnun um að hún hefði ekki lengur landvistarleyfi sem námsmaður. Hún hefur dvalið við matreiðslunám á landinu frá febrúar 2015, eða í tvö og hálft ár af alls fjögurra ára námssamningi. Þetta kemur fram í frétt Vísis.

Lög um útlendinga 2002

Gömlu lögin, Lög um útlendinga frá árinu 2002, með síðari breytingum.

Í fyrri lögum um útlendinga var nám sem veitt gat heimild til dvalarleyfis skilgreint sem „100% samfellt nám á háskólastigi, iðnnám eða það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi“. Í nýju lögunum er nám sem getur orðið til dvalarleyfis hins vegar aðeins skilgreint sem „samfellt nám á háskólastigi, þ.m.t. nám á háskólastigi sem fram fer á vinnustöðum, eða annað það nám sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi.

Lög um útlendinga frá 2016

Ný Lög um útlendinga, samþykkt 16. júní 2016, tóku gildi í upphafi árs 2017. Hér telst iðnnám ekki lengur til náms.

Flutningsmaður frumvarpsins að nýju lögunum var Ólöf Nordal, þáverandi innanríkisráðherra en að baki því stóð „þverpólitísk þingmannanefnd um málefni útlendinga“.

Björn Ingi Björnsson er yfirmatreiðslumaður á Nauthóli þar sem Chuong Le Bui hefur verið á námssamningi samhliða matreiðslunámi við Menntaskólann í Kópavogi. Hann segir í samtali við Vísi að með breytingunni sé gefið í skyn „að iðnmenntun sé minna virði en háskólanám.“

Ekki náðist á talsmenn Dómsmálaráðuneytisins við vinnslu fréttarinnar.

Önnur stéttskipting í útlendingalögum

Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images