Þing Katalóna var rétt í þessu að kjósa með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða að lýsa yfir aðskilnaði frá Spáni. Atkvæðin féllu þannig að 72 sögðu já, 10 sögðu nei en 2 atkvæði voru auð. Fulltrúar tveggja hægri flokka sniðgengju kosningarnar og yfirgáfu þingsalinn í mótmælaskyni fyrir atkvæðagreiðsluna með yfirlýsingum um að hún væri ólögmæt. Á þingi Katalóníu sitja 135 fulltrúar þannig að hreinn meirihluti þeirra styður aðskilnaðinn eða 72.
Mikil fagnðarlæti brutust út á götum Barselóna meðal fjölmennra stuðningsmanna aðskilnaðar.
Búast má við hörðum viðbrögðum frá stjórnvöldum í Madríd og hafa yfirvöld fundað í dag, að talið er, til að undirbúa skyndiaðgerðir t.d. þær að svipta Katalóníu sjálfræði í eigin málum og fyrirskipa að þingið í Katalóníu sé leyst upp. Öldungardeild þingsins í Madríd er á fundi um málið.
Byggt á umfjöllun Al-Jazeera sem fylgist með atburðum í beinni útsendingu.





